Sunday, March 26, 2006

Vodka í auga

Inclest strákarnir kveikja í gleðinni
Prófin búin og springbreak byrjað. Ég sá til þess að trompa prófessorinn í seinasta prófinu og eftir það tók við algjört chill. Á fimmtudag var hefðbundinn búinn-í-prófum bjór drukkinn og þar sem það var bara fimmtudagur var ákveðið að skella sér í bíó. Skellti ég mér á H fyrir Hefnd með íslendingunum Baldvini og Gumma. Sú mynd virkaði vel og mæli ég með henni.
Á föstudeginum var svo seinasti prófdagur í skólanum, ég ákvað að halda upp á hann með því að sofa til þrjú. Maður hatar það ekki. Kvöldið byrjaði svo rólega, byrjaði ég á því að kíkja niðrá Study Hall með Gumma, besti barinn í nágrenninu. Eftir það var svo kíkt í partí í húsi sem var í götunni fyrir neðan íbúðina. Þar spilaði hljómsveitin Inclest hágæða pönkrokk og undi ég mér þar vel. Eftir að bandið var búið að spila með tilheyrandi mosh pit, olnbogaskotum og áfengisskvettum kíktum við í partý niðrá strandargötunni. Þar var talað við allskonar fólk og var mikil skemmtun. Síðan dreif maður sig heim áður en löggan kom til að handtaka fólk. Tók nokkrar myndir, set þær inn, en vegna sífelldrar baráttu við flassið komu þær misvel út.
Vodka á leið í auga
Helgin er svo búin að vera róleg, vakna seint, borða morgunmat, tjilla, alveg eins og fríið á að vera. Nú er komið á hreint að the ultimate ferðatvíeyki Hildur Sigrún og Danni munu heimsækja mig í enda apríl. Þau munu ferðast með mér í eyðimörkina á Coachella festival. Það verður eflaust topp hamingja.
Á hverjum morgni tek ég daginn rólega og borða seríósið mitt yfir CNN. Ég hef alltaf haldið því fram að CNN sé fínasta fréttastöð en eftir því sem ég horfi meira á hana sé ég að hún er með alveg jafn lágkúrlegar fréttir og aðrar stöðvar. Um daginn náði hún hinsvegar að toppa allt í sjónvarpsskemmtun sem ég hef séð. Á morgnana er svona venjulegur fréttatími þar sem par af þulum dúndrar út fréttum. Ég sit sallarólegur og horfi á Keishu Cole og hinn gaurinn flytja fréttir. Myndavélinni er beint að þeim þannig að þau sitja bæði í mynd en bara Miss Cole er að flytja frétt. Svo gerist það. Ég tek eftir því að gaurinn fær þennann skelfingar svip á sig. Hann byrjar að skýla andlitinu og svo segir hann bara: What the hell is going on, I´m out of here. Mér brá soldið að sjá svona picture perfect kjálkabeins mann blóta í bandarísku sjónvarpi. En Miss Cole situr og flytur fréttirnar óáreitt: Ladies And Gentlemen, it seems that we have a fire in the studio. Þá koma svona baksviðs kallar og hjálpa gaurnum út og reyna reka Miss Cole út, en nei nei. Miss Cole vill bara flytja fréttirnar. Hún heldur áfram að fara yfir helstu fréttir og segir að hún gefi okkur update um leið og þau viti meira um upptök eldsins. Þá hrynja niður ljóskastara í stúdíónu. Miss Cole: Uh yes, it looks like the fire is spreading, we will keep you updated as events become clearer. Þá tekur einn baksviðs kallin sig til og tekur utan um hana og heldur bókstaflega á henni út. Síðan var myndavélinni súmað út og sá maður að partur af loftinu var bara bókstaflega alelda. Já það verður ekki tekið af Miss Cole, hún flytur fréttirnar no matter what.

This is Fridrik reporting from Spring Break

Tuesday, March 21, 2006

Zone Z-Z-Zone Out

Óperudraugurinn að trylla líðinn
Tvö próf búin og eitt eftir. Lærdómur er í hámarki og bið eftir páskafríi er í hámarki. Ég á bara eftir próf í tölulegri greiningu og búinn með eðlisfræði fögin. Næsari.
Ég sit hérna í íbúðinni að klára 10 blaðsíðna karakterlýsingu sem ég þarf að klára fyrir morgun daginn í bókmenntafaginu. Gengur vel, kominn með 8 blaðsíður af stórkostlegum senun og lýsingum. Ég var að fara yfir glósurnar mínar í því fagi og þar var verið að tala um hvernig atburðir í bókmenntum eru notaðir til að kveikja í minningum sögupersóna og búa til svona afturhvarf (flashback skiljiði).
Ég fór eitthvað að pæla í þessu og var að hugsa um svona hvernig það er þegar maður hlustar á lög þá fer maður sjálfvirkt að hugsa um ákveðna atburði eða fólk sem maður þekkir. Ég pældi aðeins í því, og þegar ég hugsa um hvaða tónlistarmenn minntu mig á ákveðið fólk var það ansi athugavert. Tengingin hefur ekkert að gera með tónlistina, bara einhverjar samræður eða eitthvað sem minnir mig á þetta. Ég skora á ykkur að reyna finna tenginuna:
  • Pabbi = Sigurður Bjóla
  • Mamma = Ella Fitzgerald
  • Jóhann = Zapp & Roger
  • Nonni = Hrekkjusvín
  • Hrafn = Johnny Cash
  • Palli = Quasimoto
  • Bjarni Þór = Brain Police
  • Addi = Björk
  • Hjölli = Chris Martin
  • Marín = Ludacris
  • Sigga = Posdnous
  • Bestla = Jim Morrison
  • Gríma = Dexter Wansel
  • Rut = Subterranean
  • Karen = Mínusbarði
  • Hildur Sigrún = Smiley (The Ghettochild)
  • Maggi = Ragga Gísla
  • Danni = Cam'ron
  • Dabbi Stóri = Lalo Schifrin
  • Björg = Kiss
úff, Þetta var gott space out. Núna er spurning um að klára þetta verkefni. Kem með almennilegann póst þegar prófin eru búin.

later:.

Sunday, March 12, 2006

We be that...afrodisiac

Tölvuvesen er örugglega eitt það leiðinlegasta sem einhver getur lent í. Það er allavega á toppnum ásamt bílaveseni. Já ég var að vinna í tölvunni minni, salla rólegur að bomba saman ótrúlega góðu stærðfræði verkefni í MATLAB, þegar talvan slekkur bara allt í einu á sér. Ég var hissa en ekkert svo, þar sem talvan var búin að hegða sér undarlega undanfarið, en síðan þegar ég ætlaði að kveikja á henni þá var hún bara eins og Lalli Johns gone cold turkey, semsagt í rugli. Allavega, þá er ég búinn að kaupa nýja vél, hewlett packard veisla, og virkar hún vel. Það var hægt að flytja öll gögn yfir, þannig ég fékk öll MATLAB forritin mín sem ég var búin að smíða ásamt myndum og tónlist. Besta við þessa nýju tölvu að hún er gjörsamlega hljóðlaus, annað en móðurskipið sem dó í gær.
Annars er það í fréttum að lokaprófin á þessari önn eru eftir sirka tíu daga, það er gúdsjitt, maður er vel stemmdur og svona, svo þýðir það líka að Spring break byrjar eftir svoan sirka tólf daga. Stefnan er að gera ekki nokkuð skapaðann hlut í spring breakinu fyrir utan það að liggja í sólinni, lesa gúdsjitt bækur og síðan er ég að stefna á það að hefja brimbrettaiðkun í fríinu. Þetta kemur alltsaman í ljós.
Síðan var það ákveðið núna í vikunni að ég ætla að bomba mér á tónlistarhátíðinna Coachella sem er haldin hér í Californiu á hverju ári. Hún verður í eyðimörkinni vestur af L.A.. Hún er í enda apríl og er listi hljómsveita sem standa uppúr alls ekki slæmur. Það er hægt að sjá lista yfir allar sveitirnar á www.coachella.com. Það verður flott að sjá menn eins og Common, Murs, Gnarls Barkley, Atmosphere, Depeche Mode, Madonna, TV on the Radio og svo Damian Marley. Ekki skemmir fyrir að Daft Punk verða á svæðinu og ekki bara á svæðinu heldur í "the dance tent". Það hlýtur að vera spes nonnasósa.
Ég er búinn að vera taka fleirri myndir af þessum helstu hérna úti, bomba þeim örugglega inn á næstu dögum, þar á meðal verður mynd af óperudraugnum Larry. Eitt hérna í sambandi við commentin sem Addi og Hjölli áttu um Sigga G. sem var með þeim úti í vín. Addi, ég fann vídeóið af Sigga G. sem þú sendir mér og gott ef ekki að Siggi og Larry séu týndir bræður. Eru örugglega með sitthvorn helminginn af medalíu, og ef þeir sameina hana þá verða þeir ofurtenórar. What the fuck, sýra, ég ætla að beila.

Friðrik

P.S. Get ekki sett in mynd núna, kerfið eitthvað skrýtið.

Monday, March 06, 2006

I... am Tetsuo


















Allir flottir í 20 ára afmælinu mínu og allar flottar í stúdentaferðinni

(eina laumu rassa myndin mín úr stúdentaferðinni)
Ég fór í próf í morgun. Ég fór rennblautur í próf. Ég tók þá gáfulegu ákvörðun að bíða með það að leggja af stað í skólann, vera flottur á því, bíða eftir því að rigningin stytti upp og renna svo heitur í hlað á hjólinu mínu. Það stytti ekki upp, ég þurfi að að hjóla á milljón yfir tröllapolla og sýru til að mæta á réttum tíma. Ég komst á réttum tíma en blautur í gegn. Þetta hafðist.
Þessi staður má eiga það að það rignir sjaldan, bara búnir að vera um það bil tveir rigningardagar síðan ég kom út. En þegar það rignir, þá rignir sko almennilega.

Eins og ég talaði um í seinasta bloggi, þá kíkti ég á RZA seinasta fimmtudag. Hann er á svona háskólatúr um Bandaríkin til að kynna bókina sína; The Wu-Tang Manual(nafnið er mjög fyndið). Þetta var flott, það var ung kona, sem er prófessor í ensku, african-american studies og fleiru sem sat með honum upp á sviði og spurði hann ýmsum spurningum. Hann var að segja sögur af því hvernig Wu-tang varð til og öll spekin á bak við þetta, flottur strákur. Síðan var komið að því að svara spurningum úr salnum. Þær voru misgáfulegar. Áheyrandahópurinn samanstóð aðallega af trylltym fratboys sem mættu í GZA liquid swords peysunum sem þeir keyptu fyrir sjö árum sem spurðu spurninga eins og: "How much weed do you smoke" og klassíska ósvarnalega spurningin "What is your best track". En þeir komu með margar góðar og það var mjög gaman að fylgjast með þessu.

Maður er alltaf að kynnast meira og meira af fólki hérna úti. Ég komst samt að því að ég er gjörsamlega óhæfur í því að giska á það hvað fólk er gamalt. Ég var að gera heimadæmi með tvemur öðrum í öðru eðlisfræðifaginu. Annar þeirra heitir Chris, stór gaur sem var með óvenjulega mikið á hreinu, miðað við það að ég sirkaði á það að hann væri einu eða tvemur árum yngri en ég. Síðan sagði hann mér að hann væri 24 ára með B.S. í rafmagnsverkfræði. Það útskýrði margt. Það virðist vera svona með flesta í eðlisfræðinni. Annað hvort eru þeir "super seniour" old cats að dunda sér í háskóla, eða bara gaurar eins og ég að bomba sér í gegnum þetta. En seinni týpan virðist vera í áberandi minnihluta.
Einn karakter sem ég verð að minnast á er gaur sem ég man ekki hvað heitir. Asískur (asian-american eða eitthvað þannig) gaur sem er með mér í verklegum tímum. Það atvikaðist þannig að við vorum á báðir á leiðinni í rec center(lyftingarstöðin hérna á svæðinu). Við vorum samferða og spjölluðum heilmikið. En þegar við erum í búningsklefanum og ég er að klæða mig í íþróttafötin, þá byrjar gaurinn að syngja. Og ekkert venjulega. Hann er ekkert að syngja Stebbi stóð á ströndu eða eitthvað þannig. Gaurinn syngur af fullum krafti einhverjar mega aríur og óperur sem hann hlustar á. Hann hefur hlotið viðurnefnið Óperudraugurinn. Ég þurfti að halda niðrí mér hlátrinum og hélt að hann væri bara eitthvað að flippa í þetta eina skipti. En nei nei. Ég hef hitt hann núna nokkrum sinni þarna í ræktinni, og í hvert einasta skipti sem maðurinn stígur inn í búningsklefann halda honum engin bönd. Veit ekki alveg hvað hann er að pæla þar sem hann er ekkert besti söngvari sem ég hef heyrt í.

Núna fer að líða að lokaprófum og svona þannig þetta fer allt að fara á fullt. Núna er aðalverkenfið að stúta skilaverkefnum í stærðfræðikúrsinum. Það er flott. Seinni önnin bara að fara byrja, þetta hefur liðið ekkert smá hratt.

Síðan er ég að pæla að hafa þetta svona standard, að setja inn polaroid myndir sem voru teknar með gömlu vélinni með flestum færslum. Mér virðist að fólk sé ekkert að hata það.
Allavega, ég ætla að rúlla, ekkert vera feiminn við það að setja helstu scoopin í kommentakerfið hérna. Þá sé ég best hvern ég á að hringja í þegar ég bjalla á skype-inu.

Lög daganna:
Roy Ayers - Raindrops keep falling on my head
Sergio Mendes - Capoeira Do Brasil
King Geedorah - The next level

Seinna,
Frikki

P.S. Hversu fyndið er það að Three 6 Mafia hafi fengið óskarsverðlaun?

Thursday, March 02, 2006

It Must Be Bobby

Finnið fimm villur.

RZA mættur til Santa Barbara. Fyrirlestur og læti á morgun. Stefnan er að fá að vita Who killed Bill.

Lag dagsins: Grandmaster Flash & Furious Five - It´s A Shame(Mt. Airy Grove)