Saturday, September 16, 2006

Gærulaxera

Í gegnum mína lífstíð hafa komið upp hlutir sem eru gjörsamlega tímalausir eða eins og Jóhann Ari myndi orða það: Þetta er helvítis klassík. Já þessir hlutir verða seint þreyttir
Á þessum lista eru margir góðir hlutir, sumir hafa komið og farið en aðrir eru enn við lýði. Ofarlega á þessum lista er t.d. ristaðbrauð ristað með engu nema smjöri og ísköld kókómjólk, lag númer 3 á lögum unga fólksins, Kattholt og ýmist annað.
Það eru samt fáir hlutir sem komast jafn ofarlega og kvikmyndin Með Allt á hreinu. Þessi mynd er svo mikið rugl að það er fáranlegt. Flottar setningar sem vella upp úr mönnum eru svo góðar, flott lög, ógeðslega ljótir hljómsveitabúningar, Flosi Ólafson, lélegur söguþráður, Eggert Þorleifsson. Allt þetta sameinast í suðupott af yndislegri gegnsýrðri tónlistar veislu:
,,,,langferðabíll. Ha, föttuði þennann?

Gleymið því rýjurnar mínar. Í kvöld mun Stuðmenn sitja einir að kjötkötlunum
Ekki aldeilis kall minn, ekki eftir fyrirhöfnina sem stelpurnar hafa lagt í þetta. Yfir!
Svona skinnin mín, það voru Stuðmenn sem voru ráðnir og það strax á útmánuðum, Gærurnar voru einungis hugsaðar sem hækjur og hjálpargögn og hananú. Skipti!

Á Atlas og Muller leggjum við þrotlausa stund

Hvar er Guðfinna búktalari?
Guðfinna. Við vorum með Ingvar og Gylfa!

Ég færi heljarstökk aftur á bak, af litlu bretti

Ég get aldrei sýnt mig aftur á billanum, eins og ég hafði gaman að því

Wednesday, September 13, 2006

The Return

Þá er maður mættur aftur í Kaliforníu. Kom í gær um tvöleytið. Fínt veður sól og hiti. Í dag er reyndar bara skýjað en sami hiti.
Staðan var tekin á Rut og Jóhanni í Boston í eina nótt. Augljóst er að Rut hefur bætt íbúðina til muna með sínu handbragði. Einnig gerðin hún sér lítið fyrir og klippti af mér faxið. Þá er maður orðinn hárlaus eftir að hafa verið með sítt hár í um það bil 4 ár. Þá er ég formlega búinn að skipa mér í þennann hóp:
  • Nonni Draumur
  • Palli Sæti
  • Hrafn Módel
  • Addi Slim
  • Bjarni Handleggur
  • Maggi Beauty
  • Kiddi Myndarlegi
  • Danni Illaði
  • Yngvi Hotboy
  • Hjölli Handsome
Allavega námið er strax byrjað hjá mér. Sit núna upp á bókasafni að læra undir þetta blessaða GRE próf. Eintóm hamingja.
Ég er búinn að panta netið í íbúðina og ætti að fá það annaðhvort á föstudag eða á laugardag. Þá getur maður spjallað á skype og svona. Hef þetta nóg í bili. Smá myndir af klippingunni
óklipptur og sóðalegur
Klipptur og fresh like a million bucks

Later