Monday, June 12, 2006

One and One and One is Three

Friðrik pakkaði sjálfum sér ofaní tösku. Hann kemst ekki heim. Má bara vera með eina tösku í handfarangri. Klukkan 6:30 á laugardags morgun mun Tom "Sugarfoot" Brewster mæta á Keflavíkurflugvelli. Sportandi axlaböndum, kuta, glænýjum buffaló pels, eld harðri sexhleypu með svartann kúrekahatt undir hendinni. Hver skaffaði eiginlega þetta tóbak. Þessi bær er ekki nógu stór fyrir okkur báða.
Próf á morgun, próf á fimmtudag, heimferð á föstudagsmorgun. Seinasta bloggið.

What is your name?
My name is Nobody.
Excuse me?
My name is Xebeche. He who talks loud, saying nothing.
He who talks...
I thought you said your name was Nobody.
I preferred to be called Nobody.
á leið inn í sólsetur,
Sykurfrár á sykurfæti

Sunday, June 04, 2006

Name That

Lifi Kúba
Nafnasamkeppni Klámkjallarans er nú í hámarki, í miðjum próflestri og 25 stiga hita. Ýmsar tillögur hafa borist að nýju nafni og opnunar teiti:
  • Ölkjallarinn - frá Eigundum - Á svæðinu útdeilir Lárus Hólm special edition kampavíns moijito og segir fólki afhverju Sigurður Bjóla og Valgeir séu bestir í heimi. Einnig verða sagðar hetjusögur af Valsmönnum að taka hetjuveltur. Jóhanna útdeilir viðeigandi klæðnaði og skýtur alla í kaf með fimmaurabröndörum sem vilja ekki hífa upp um sig buksurnar.
    Leynigestur: Hemmi Gunn
  • Lúbarinn - frá Pálmari - Á svæðinu verður Pálmar að botna allar setningar með samhengislausum bröndörum. Jón Árni verður með kossabás hjá skrifborðinu og kyssir þá sem vilja fyrir bjórsopa. Samningaviðræður eru hafnar við Davíð um að koma og sýna heimsklassa luftgitar sólo og "Metallica loves you" öskur.
    Leynigestur: Kalli Lú
  • Sprengjuskýlið - frá Arnari Frey - Á svæðinu verður Hrafn búinn að setja upp diskóljósin sín og Hjölli verður með "Hverjir eru með hverjum" upplýsinga bás í tröppunum. Arnar mun segja svaðilfara sögur af Prikinu og sýna fólki hvernig á að drekka hot sauce beint úr flöskunni. Bjarni Þór mun standa upp í bláa sófanum og kenna fólki Massadansinn.
    Leynigestur: Páll Óskar
  • Boom Boom Room - frá Jóhanni - Á svæðinu verður Jóhann að sýna gamla takta á stálhjólunum og sýnir fólki hvernig á að dansa "house" dansa. Go Go stelpur verða í öllum hornum og Rut mun deila út slúðri til þeirra sem vilja. Eitt slúður kostar einn Cosmopolitan. Mælt er með því að mæta í þröngum fötum og búast við Daft Punk og Carl Cox veislu.
    Leynigestur: Gummi Gonzales
  • Á Horninu - frá Sigríði - Á svæðinu verður fimleika hestur og sýnir Sigga hvernig útbrunnar fimleikasjörnur fara í flikk flakk. Einungis verður drukkið bjór og skipt verður í lið. Vinningsliðið fær koss á kinn og tapliðið fær ókeypis aðgang að Seltjarnarneslauginni í heilt ár.
    Leynigestur: Samúel Örn
  • Le Chateau - frá Grímu - Á svæðinu verður fólk að hegða sér því annars fær það enga osta. Boðið verður upp á Bordeaux rauðvín og súkkulaði frá Sviss. Strákum er skylt að mæta í jakkafötum og vera sætir. Einungis verður hlustað á Edith Piaf og talað með útlenskum hreim. Þýska bönnuð.
    Leynigestur:
    Gerald Depardieu
Atkvæðagreiðsla og nýjar tillögur fara fram í kommentum

Friður,
Friðrik