

Hárið og Hrafn við góða stund......Palli og Nonni fylgjast með Super Bowl
Eftir temmilega annasaman dag á bókasafninu yfir rafsegulfræði ákveð ég að skutlast heim og slappa af. Á leiðinni heim tek ég semi gáfulega ákvörðun að koma við í Isla Visla market til að kaupa ýmislegt í matinn og heimilsvörur. Þar sem ég kem aðsvífandi á hjólinu mínu sé ég að það er limmó fyrir utan búðina. Þar sem flestir nemendurnir hérna aka um á trylltum bílum var ég ekkert að hoppa hæð mína yfir þessu en fannst það samt soldið skrýtið. Þegar ég nálgaðist tók ég eftir því að þetta var engin venjuleg glæsikerra. Þetta var semsagt extra löng Cadillac Escalade lengja (lúxus jeppi númer eitt í Bandaríkjunum). Þegar ég labba inn í búðina tek ég eftir trylltri röð af drengjum. Það sem var skrítnast við röðina var að í staðinn að hún byrjaði lengst inn í búð og endaði á kassanum þá byrjaði hún á kassanum og endaði einhversstaðar innst í búðinni. Þar sem ég var ekki hinn ferskasti, búinn að steikja á mér hausinn með eðlisfræðum jöfnum, var mér nett sama. Ég byrja að troða mér inn í búðina og ná í vörur. Á þessum tímapunkti var ég orðinn semi pirraður af öllum "Hey Dude" gaurunum í röðinni sem voru fyrir cocoa puffsinu. Ég rölti um og næ í þetta helsta: Kál, wonderbread, pepsi, sinnep og fer svo í mission að ná í klósett pappír. Þá komst ég að ástæðu raðarinnar. Við pínulítið borð sátu þrjár hálfnaktar stelpur umkringdar öryggisvöðvum að árita Playboy blöð sem strákarnir héldu á. Ég hugsaði "Hvað í andskotanum er í gangi" en ákvað að vera rólegur. Ég komst að því eftir á að Playboy var að gefa út eitthvað special edition blað þar sem þeir gerðu vísindalega könnun á 10 bestu partý skólunum í Bandaríkjunum. Auðvitað voru svo þrjár stelpur úr hverjum skóla sem sátu fyrir á keisarafötunum í blaðinu. UCSB lenti í öðru sæti og gæti ég ekki verið ánægðari. Þar sem borðið með stelpunum var akkúrat við hliðina á klósettpappír rekkanum þurfti ég að troðast fram hjá "Hey Dude" gaurunum og security vöðvunum sem voru að passa stelpurnar. Þeir sem þekkja mig vita að ég elska svona vesen og var ég því orðinn nett pirraður. Þegar ég er búinn að komast framhjá öllum og er að troða klósettpappír í körfuna mína er pikkað í öxlina. Þegar ég sný mér við stendur ein playboy stelpan í einhverju lífstykkjaoutfitti með brjóstin út um allt og alltof stuttum stuttbuksum. Svona fór samtalið:
Playboy Beygla: Hey, where do you want the autograph
Ég: I don´t want any autograph
Playboy Beygla: Come on, where´s your Playboy
Ég: Seriously, I don´t want your autograph
Playboy Beygla: We´ll all sign it for you
Ég: I was only getting some toilet paper
Playboy Beygla: Why don´t you get some Playboy and autographs
Ég: Why don´t you put on some clothes and go to class
Playboy Beygla(ekki sátt): Security!
Þegar ég sagði þetta sló dauðaþögn á "Hey Dude" röðina og öryggisvöðvarnir fóru í gír. Ég var beðinn um að step away og Playboy stelpan settist aftur við borðið. Ég ákvað að step away og borga fyrir dótið.
Annars hefur lífið verið mjög venjulegt. Seinasta laugardag var "Save the Earth Saturday". Þá mæta allir hippar í kaliforníu í almenningsgarð í Isla Vista og halda party like it´s 1969. Ég mætti og tjekkaði á stemmingunni. Þetta var nice, svipuð stemming og á jónukeppninni sem var í janúar. Um kvöldið var svo kíkt í partý á strandgötunni. Ég mætti í eitthvað partý í risastóru húsi sem var með útsýni frá svölum beint yfir ströndina. Inní stofunni þar var jafnpakkað og inná Prikinu, jafnsveitt og inn á Kaffibarnum og tónlist eins og á Sólon. Þar spjallaði ég við marga góða menn, þar á meðal Josh og Carl sem stjórnuðu bjórtunnuni. Í hvert skipti sem maður náði í bjór þá lýstu þeir því yfir að þeir væru á leiðinni í Special Forces í hernum. Mér fannst það mjög sniðugt og spurði þá út í það. Fyrst þurfti ég að sanna mig með því að taka bjór í trekt, en það er mjög auðvelt í Bandaríkjunum þar sem eina sem drengir drekka hér er light bjór eða "keg" bjór sem er mega vatnsblandaður. Eftir að hafa sannað mig fékk ég að vita það að þeim hlakkar geðveikt til að fá að keyra Hummera í eyðimörkinni og læra drepa araba með þumlunum sínum. Mér fannst það geðveikt og vona að draumurinn rætist. Einnig spjallaði ég við nokkra hippa sem ég hafði hitt fyrr um daginn á hátíðinni og voru þeir nettir. Topp fólk þar á ferð.
Kúrsar eru núna loksins komnir á hreint fyrir vorönnina, tók heldur lengri tíma en seinast þannig maður þarf að taka vel á því núna í byrjun annar. Skráði ég mig í Advanced Vector Calculus, Computer Interfacing (læri að forrita með C, algjör grand), Electromagnetism og svo Transforming Real-Life stories into Fiction. Það er mjög nett að margir sem voru með mér í tímum á fyrri önninni eru í sömu tímum og ég. Þar á meðal nafnlausi ástralinn og Larry Óperudraugur. Svo var ég að komast að því að Blackalicious eru með tónleika 1 maí og B.B. King 25 maí. Ekki slæmt það, svo er það náttlega Coachella baby.
Ég tók einhverjar myndir á hippahátíðinni og bomba þeim inn bráðum, á svo eftir að setja inn eldri myndir. Geri það á næstunni.
Komið gott.
Friðrik