Friday, April 28, 2006

Vín í poka

Glæstar vonir í Santa Barbara
Nú eru Danni og Hildur búin að vera hérna í nokkra daga og una vel. Komu seint á þriðjudagsnóttinni. Ég ætlaði náttlega að vera eld heitur og taka strætó á flugvellinn og fylgja þeim upp á íbúð. Það fór ekki betur en svo að strætó var hættur að ganga, og ég tók þá fínu ákvörðun að rölta bara á flugvöllinn. Þegar ég var búinn að labba í hálftíma var ég rétt svo hálfnaður. Danni hringir þá í mig og segir að þau séu komin. Þetta endaði með því að þau tóku leigubíl upp í íbúð og ég skokkaði til baka. Þar sem ég nennti ekki að skokka fann ég mér eitthvað crap-ass gamalt hjól, eignaði mér það og hjólaði til þeirra. Óumdeild besta innkoma sögunnar.
Síðan eru þau bara búin að vera taka inn þessa UCSB upplifun og þetta helsta. En allavega ætla að hafa þetta stutt bara núna, bomba inn betri sögu þegar við komum til baka frá Coachella.

Friður,
Friðrik

5 comments:

Anonymous said...

Flott mynd enda fallegt fólk. Góða skemmtun elskurnar og farið varlega.

Anonymous said...

Djöfull ertu orðinn myndarlegur Friðrik

Anonymous said...

Rosalega er ég sammála síðasta ræðumanni! Ég renn bara til í stólnum! Svona líka gullinn á litinn og fínn:)

En rosalega væri ég til í vín í poka núna! eða vera þarna á Coachella, arg... bíddu með að segja hvernig var þangað til 15. maí, ég má ekki við öfundsýki þessa dagana!

Ég hef verið að hugsa um það í dag að fá mér tatto, hvernig líst þér á það frikki minn? Tattúvera á mig sokka, rauða og bláa sportsokka línur í sokkahæð, það er alvöru hehe

Have fun

Anonymous said...

ohhh....
ég hugsa mikið til ykkar héðan úr Odda í sveittum og klístrugum plóflestri...
En Friðrik, hvernig bragðaðist kókómjólkin?

Krakkar getið þið ekki tekið Frikka með ykkur heim?
einhver þarf að sannfæra Adda um að sleppa þessu tattoi... ;)
svo er þín líka bara einfaldlega sárt saknað héðan af klakanum...

Bíð spennt eftir fréttum af helginni, góða skemmtun.

Anonymous said...

go for it Addi