Thursday, November 08, 2007

And or Not

Rall pt. 1
Rall pt. 2
Rall pt. 3

Mikið er búið að gerast síðan ég bloggaði seinast. Það er búið að vera nóg að gera í skólanum og Marín kom í heimsókn seinustu vikuna í október, þá var mikið slappað af gott rall tekið með Jóhanni, Rut, Hrafni og Jenný.

Helstu fréttirnar eru þær að ég ákvað að skipta um rannsóknarefni sem tengis mastersverkefninu mínu. Upphaflega, eins og flestir vissu, hafði ég ákveðið að finna mér efni innan “audio engineering”. Mér hefur lengi langað til að komast að í þeim geira og fá vinnu í framtíðinni hjá fyrirtækjum á borð við Bang og Olufssen, Bose og þessháttar. Liður í því að finna mér efni í mastersverkefnið var auðvitað að fara á ráðstefnuna í New York og sjá hver væru stærstu vandamálin sem áhugvert væri að takast á við. Hljóðverkfræði sviðið er náttúrulega risastórt og fullt af áhugaverðum rannsóknum að skoða. Hinsvegar lá það alltaf undir hjá mér að mig langaði að færa mig yfir í önnur rannsóknarsvið.

Þegar ég var að sækja um skóla hafði ég tækifæri til að heimsækja Tufts, Brown University og Rennselaer Polytechnic Institue. Í þessum heimsóknum náði ég að tala við marga prófessora og kynnast hljóðverkfræðinni vel. Það sem ég kynntist líka var lífverkfræði (e. biomedical engineering). Lífverkfræði er svið sem er gjörsamlega að sprengja af sér allar hömlur. Í Brown talaði ég við prófessor sem er að skoða venjulegar frumur og athuga hvernig þær geta virkað sem rökhlið. Það er, í gegnum rannsóknir eru menn við Brown háskólann búnir að uppgvöta það að ef skoðaðar eru tvær lífrænar frumur af svipaðri tegund og rafstraumur er einungis látinn fara um aðra þeirra gefa þær ekki frá sér neitt merki, eða rafstraum. Hinsvegar hef rafstraumur er látinn fara í þær báðar þá “svara” þær merkinu saman með því að gefa frá sér merki. Þeir sem hafa lært grunntölvunarfræði eða boolean-algebru sjá að þessi hegðun svipar til “og” (e. and) rökhliðsins. Og rökhliðið virkar þannig að það er með tvo innganga þá gefur það ekki merki frá sér nema inngangur 1 OG inngangur 2 fái straum. Hlið að þessari tegund eru grunnurinn af tölvunum sem við notum í dag og þið getið þannig rétt ýmindað ykkur hvernig tölvur geti orðið ef við getum búið til tölvur með því að nota lífrænar frumur sem rökhlið. Þar sem tölvu fyrirtæki glíma stöðugt við vandan að örgjörvar eru orðnir það litlir að rafeindir eru byrjaðar smjúga (e. tunnel) í gegnum rásir sem þær eiga ekki að fara, þá eru þessar lífrænu rásir einstaklega áhugaverðar.

Þegar ég heimsótti RPI talaði ég við prófessor sem var að hanna tæki sem finnur brjóstakrabbamein með því að láta rafstraum ganga í gegnum brjóst og mæla viðnámið í hverjum punkti í brjóstinu. Með þessari aðferð er hægt að búa til þrívíddar líkan af innviðum brjóstsins því eins og allir vita þá er hver hlutur með mismunandi viðnám. Þetta er ótrúlega gagnlegt þegar leitað að brjóstakrabbameini þar sem ekki þarf að opna brjóstið og það þarf ekki stóra, þunga og dýra röntgen vél.

Sú rannsókn sem ég mun vinna að það sem eftir er af mastersnámi mínu er að skoða svokallaða DOT aðferð (e. diffuse optical tomography). Ég er búinn að fá inn hjá prófessor hérna í Tufts sem heitir Eric Miller og hefur hann skoðað þessa aðferð mikið í samvinnu við prófessor í lífverkfræði, Sergio Fantini. DOT aðferðin er í grunnatriðum byggð á því að ljós, sem er nánast innrautt, er látið skína á einhvern hlut. Hinumegin við hlutinn eru nemar sem nema hversu mikið ljós kemst í gegn, og hversu mikill styrkleikinn er í hverjum punkti. Með þessari aðferð er hægt að sjá hvort einhver aðskotahlutur er í efninu sem maður er að skoða og í framtíðinni verður jafnvel hægt að setja upp líkan (þrívíddar?) til að lýsa hlutnum. Nú er spurt, er þetta betra en viðnámsmælingin? Hverjir eru kostirnir og afhverju vil ég skoða þetta? Til að svara fyrstu spurningunni þá hefur viðnámsmælingin marga kosti en einnig marga ókosto. Það segir sig sjálft að senda rafstrauma í gegnum lífræna vefi getur verið skaðlegt óháð því hversu litlir straumarnir eru. Einnig er ekki séð fram á það að vélin sem framkvæmir verkið verði mjög lítil, hinsvegar verður nákvæmnin gífurleg.

DOT aðferðin er gífurlega áhugaverð því ekki einungis er hægt að nota hana til að leita að brjóstakrabbameini heldur er þegar byrjaðar rannsóknir að skoða hvernig nota megi hana til að fylgjast með virkni í heila. Einnig er verið að stunda rannsóknir á stærri skala, þ.e. að nota hana til að finna jarðsprengjur eða misgengi í bergi. Bæði viðnámsmælingin og DOT hafa þann kost að skerpan (e. constrant) í gögnunum, það er litabreytingin sem sýnir mismun í efninu er mjög mikil. Gallinn við röntgen myndir er sá að þar er engin skerpa(svarthvítar myndir) en upplausnin er mikil. Þannig að nota DOT tæknina ásamt röntgen tækni er eitthvað sem menn eru að skoða.

Annað sem heillar við DOT tækni er sá að búnaðurinn sem þarf til að framkvæma “myndatökuna” er smávægilegur. Séð er fram á það að hægt verði að hanna tæki sem gæti setið við hliðina á sjúkrarúmi rétt eins og hjartalínurit. Getiði ýmindað ykkur það að læknir sem er að framkvæma heilauppskurð geti haft haft stöðugt eftirlit með heilavirknini á skjá fyrir framan sig.

Ástæðan fyrir því að ég skipti um rannsóknarsvið var í fyrsta lagi sá að það er augljóst að lífverkfræði sviðið í samvinnu með rafmagnsverkfræði er svið sem er gjörsamlega að sprengja af sér öll bönd. Í öðru lagi var ég mikið að hugsa um það hvort ég vildi hanna nýjan magnara fyrir Bang og Olufsen eða geta fundið nýja tækni til að hjálpa læknum. Það er augljóst. Í þriðja lagi þá var hljóðverkfræðin gjörsamlega hrein rafmagnsverkfræði. Í hreinskilni sagt þá var ég strax farinn að sjá eftir þungri stærðfræði og eðlisfræði. Það að ég rannsaki DOT tækni þarfnast þess að ég hafi mikla þekkingu á skammtafræði og eðlisfræði ljóss, ásamt því að vera með rafmagnsverkfræðina á hreinu. Eftir að ég tók masters skammtafræði kúrsinn í Santa Barbara sá ég loksins hvað hún er skemmtileg(skildi hana loksins) og vil geta haldið áfram að skoða hana. Einnig þarfnast þessi rannsókn þess að ég skoði líkinda og tölfræði mjög vel. Prófessor Miller er upphaflega stærðfræðingur og er hann aðallega að skoða hvaða líkön er hægt að nota til að nálga rannsóknargögnin og hvernig er best að vinna úr þeim. Þegar ég var að velja kúrsa fyrir næstu önn með honum þá skoðuðum við kúrsa í framhaldsnámi í stærðfræði deildinni, þannig að ég er kominn nær heimahögum þar heldur en í hreinni rafmagnsverkfræðinni. Ég segi því ánægður að ég sé að stíga fína og flotta lína af stærðfræði, hagnýtri eðlisfræði, lífverkfræði og rafmagnsverkfræði. Á næstu önn mun ég taka því taka fögin “Intro to Medical Optics and Lasers” og svo “Advanced Signal Processing”.

Óháð því hvor ég haldi áfram að vinna með DOT tækni eða eitthvað svipað eftir framhaldsnám, þá er aðal málið að komast inn í þessa tenginu við lífverkfræði. Þetta er klárlega málið.

Í öðrum fréttum er það að ég kem heim í stutta heimsókn til Íslands eftir rúma viku. Lendi á heittelskaðri ísafold að morgni 17. nóvember. Áður en ég geri það er stórt verkefni sem ber að skila á þriðjudag og tölfræði próf á fimmtudag. Starfið er margt.

Með lærdómnum þessa dagana er fönkið allsráðandi. Cosmic Slop með Parliament Funkadelic er fáranlega gott, George Clinton að slá í gegn. Komst einnig yfir Nickle & Nails plötuna með O.V. Wright. Skemmtilegt að athuga hljóðbútinn í laginu Born all Over sem var notaður í Mosó með Dóra DNA. Flottur texti líka í Eight men, four women.

17. nóvember verða allir á Gauk á Stöng. Aukaatriði er að DJ Evil Dee verður þar(Evil Dee is on the mic, come on, kick it!), aðalmálið er að 1985! verða á svæðinu. Setjum kampavín á ís og hlustið síðan á meira hérna.

Endalaust hip-hop hip-hop hip-hop. Playaz Circle og Lil' Wayne í viðlaginu á Dufflebag Boy. Besta remix haustsins, Drink N My 2 Step, Cassidy ásamt Swizz Beats, Kanye West og Ne-Yo. Síðan er það algjört gull í poka. Óútgefið með Biggie Smalls, Modern Day Gangstas, ekki bara það heldur Busta Rhymes með eitt vers og J Dilla með taktinn. Biggie, Rhymes og Dilla. Gerist ekki betra.

Gáta dagsins:
  1. Þetta lag var notað í hip-hop smell árið 2004. Þetta lag var útum allt og viðlagið var mjög þekkt. Hvaða lag er það og hverjir fluttu það.
  2. Hvaða lag er verið að flytja hérna og nefnið tvo aðra tónlistarmenn sem hafa flutt það, eða hljómsveitir. Hver samdi er nú auðvelt.
  3. Hérna er gúdsjitt lag. Hver syngur viðlagið í þessu lagi.

Ég held að þetta sé komið gott í bili.


kv,

Friðrik

Friday, October 12, 2007

Herr Professor Doktor

Ógiftur maður í kjallaranum

Föstudagskvöld, bara rólegheit. Kom heim um kvöldmatarleytið með tvær spólur, Black Sheep og Elizabeth. Ákvað að horfa á Black Sheep til að fá smá Chris Farley geðveiki og kókaín grunge húmor í mig og síðan ætla ég að rýna í Elizabeth til að vera tilbúinn að sjá Elizabeth: The Golden Age í bíó. Það er svo gaman að fara í bíó.

Algjörir young cats

Ég var ekki kominn heim fyrr en í kringum 7 leytið í dag eins og alla föstudaga. Þrisvar sinnum í viku þrjá tíma í senn er ég með verklega tíma í Analog Electronics. Fyrst þegar ég var að byrja með tímana hélt ég að ég myndi deyja, þetta var að klúðrast. Fyrsta verkefnið var einhver bjánaleg feedback rás sem nemendurnir áttu að herma í tölvuforriti. Tölvuforritið reyndist meingallað og illa uppsett á skólatölvurnar sem skapaði mikinn höfuðverk fyrir mig þar sem prófessorinn í faginu kunni ekki mikið á það sjálfur.
Eftir fyrsta daginn var það "smooth sailing on calm seas". Hinar verklegu æfingarnar eru flottar rásir sem ég þekki mjög vel og eiga krakkarnir að lóða allar rásir. Ég set saman allar rásir fyrirfram og ég verð að segja að ég er orðinn mun betri að lóða en þegar ég setti saman alræmdan aflgjafa(betur þekktur sem "Rebel without a Cause") á þriðju önn í Háskóla Íslands.
Þegar ég var að byrja að kenna þessar æfingarnar fannst mér það fáranlega gaman. Allir mættu mjög vel, skiluðu á réttum tíma og voru með allt á hreinu.

Ég ætla aldrei að verða kennari.

Þegar ég var á seinni árum í Verzló og síðan í HÍ fékk ég það orðspor á mig að vera grófur við kennara og sagður stundum rífa kjaft. Við skulum skoða þetta aðeins nánar. Á seinustu tvem árunum í Verzló reif ég kjaft við einn kennara. Fúsa. Ég reif aldrei kjaft við Þórð Möller, Guðrúnu, Benna, Ármann eða jafnvel vanhæfu þýskukennarana. Afhverju reif ég svona mikinn kjaft við Fúsa. Ég stend fyrir þeirri sterku og góðu skoðun að þú færð ekki virðingu nema þú sýnir virðingu. Fúsi er einn af þeim kennurum sem finnst að allir nemendur hans eiga að finnast hann æðislegur, engu máli skipti hvernig hann standi sig. Honum varð fljótt illa við mig og ég við hann því ég kvartaði undan námsefninu og að hann kenndi bara nokkrum einstaklingunm í bekknum, þ.e. stelpum sem sögðu halelúja og amen. Það er kannski í lagi en hann kom fram við restina af bekknum eins og drasl og þessvegna varð þetta að rugli. Fúsi var 100% fáviti sem heldur hann sé algjör stjörnumáltíð út af því að hann kláraði master í eðlisfræði 33 ára gamall og klæðir sig í stærðfræði/MIT/Stjörnufræði boli. Hverjum er ekki sama. Hann var pizzasendill í þröngum buksum sem sýndi alltaf hvoru megin hann var.

Í HÍ reif ég kjaft við engann kennara. Nema Jón Hálfdánarson. Jón Hálfdánarson var algjörlega út af kortinu. Eðlisfræði kennari, alveg eins og Fúsi, vissi ekkert hvernig hann átti að snúa á sviðinu og gat engan vegin komið efninu frá sér. Ég kvartaði mikið undan Mastering Physics kennsluefninu sem var notað. Heimadæmin voru leyst á netinu og átti að vera voða móðins. Þetta varð til þess að öll eðlisávísun sem maður byggir upp með dæmareikningi og viðbrögðum kennara við honum fór út í bláinn. Tölva fór sjálfvirkt yfir dæmin og varð því ekkert samband. Þetta fannst Jóni æðislegt og reifst ég mikið við hann og gekk út úr tíma í ófá skipti. Hann réttlætti þetta með því að Kanarnir(e. Yanks) væru að nota sömu bók í stærstu skólunum. Síðan fór ég í skiptinám til UCSB, flottur skóli á eðlisfræði mælikvarða, og þar notuðu þeir Mastering Physics. Þar voru allir hundóánægðir með bókina og kennsluefnið og voru að vinna í því að skipta henni út. Feis Jón. Feis.

Hrafn man kannski líka eftir því þegar við fórum í vettfangsferð upp á Veðurstofu. Jón fór með okkur en vantaði far þar sem hann hjólaði alltaf í skólann. Auðvitað bauð ég honum far. Ég og Hrafn tókum hann á beinið á leiðinni upp á stofu og stóð hann alveg á gati. Ef að kennari stendur ekki á sínu og sýnir nemendum fram á það að það eigi að vinna hlutina eins og þeir leggi til, þá eiga þeir að hætta að kenna.

En afhverju er ég að nefna þetta. Eru allir krakkarnir að rífa kjaft við mig? Nei, heldur betur ekki. Þetta eru flottir krakkar. En síðan eru strákarnir, sem mæta í alla tíma, hlusta á sama hlutinn aftur og aftur og taka ekkert inn. Spyrja sömu spurninganna þrisvar og hlusta ekki á svarið. Skila inn ljótum heimadæmum og botna ekkert í lélegri einkunn. Svo eru stelpurnar, sem skrifa 20 blaðsíðna skýrslum sem gátu verið 3 blaðsíður, spyrja og spyrja spurninga um hluti sem þær vita bara til að vera "vissar". Svo eru strákarnir sem halda að þeir vita allt áður en þeir mæta í tíma og gera allt rosalega snöggt og rosalega hratt og fá rosalega rangar niðurstöður og gleyma að svara flestum spurningunum í skýrslunni. Svo stelpurnar sem eru alltaf með símana uppi og tala alltaf með spurningatón þótt þær séu ekki að spyrja. Svo er allt þar á milli.

Ef ég myndi leggja þetta fyrir mig þá myndi ég enda eins og Jón og Fúsi. Leiðinlegur kall sem er orðinn þreyttur á að kenna með krakka upp á móti mér. Það er ástæðan fyrir því að mig langar ekki að vera kennari.

Í augnablikinu finnst mér þetta ennþá gaman. Flestir krakkarnir eru mjög skemmtilegir og ferskir, æfingarnar fínar og peningurinn meira en vel þeginn. Enda væri ég ekki að þessu nema að mér væri borgað góð laun.

Í næstu viku fer ég í eitt miðannarpróf í digital signal processing og svo er eitt próf í tölfræði í vikunni þar á eftir. Undanfarið er búið að rigna þokkalega hérna í Boston og farið að kólna töluvert. Ég verð að segja að ég er mjög ánægður með það.

Núna ætla ég að bjóða upp á frábært lag, Woman of the Ghetto, með Marlene Shaw. 9th Wonder notaði þetta lag í Slippin' á Chemistry plötunni með Buckshot. Þið heyrið kannski kunnulegan hlut í enda lagsins þar sem Shaw fer út í geng-geng trans. Það er rétt, Marlena er söngkonan sem var notuð í alræmda geng-geng lagið sem tröllreið öllu á Íslandi á öndveðri 20. öld. Það var lagið Liberation Conversation af sömu plötu, Spice of Life. Ég ætlaði fyrst bara að setja inn Woman of the Ghetto en núna stenst ég ekki mátið að setja besta lagið af plötunni líka. Það er California Soul, sem DJ Premier notaði í Gangstarr lagið Check the Technique.

Í bili skulum við halda okkur í svörtum sálar elskum og hlusta á Martha Reeves & The Vandellas. Allir þekkja þessar elskur fyrir að hafa sungið Heat Wave svo óaðfinnanlega. Hérna eru þær mættar með snyrtilega ábreiðu. Bítlalagið Something. Fiðludramað nær ekki jafn miklu hámarki í þessari útgáfu en sálin er mun meiri.

Svo er rappið. Ég elska þetta rapp. Ég var að uppgötva frábæra plötu. World Premiere með The Team. Þetta er plata sem kom út 2006 og ég er búinn að hlusta á hana mjög mikið undanfarið. Þetta eru þrír ungir menn frá Oakland og þeir eru ekki með neina bófastæla. Þeir rappa aðallega um þrjá hluti svo ég vitni í vinsæla bloggsíðu: "There’s no crime-talk going on here and the lyrics pretty much focus on getting high, getting laid and getting around The Bay area". Bestu lögin á plötunni eru umdeilanlega Top of the World og Touch The Sky. Ég vil að Kiddi Myndarlegi og Hildur Sigrún hlusti sérstaklega á Top of the World. Þetta er þetta hljóðgervla brjálæði sem við elskum. That hot shit.

Meira rapp. Smá afturhvarf. Á leiðinni frá New York las ég heila bók. Hún er hluti af 33 1/3 seríunni þar sem merkilegar plötur eru teknar fyrir og krufnar til mergjar, lögin skoðuð og heimsástand þegar platan var samin íhugað. Einnig er fjallað ítarlega um ástand hljómsveitarinnar þegar viðkomandi plata er samin. Bókin sem ég las í þetta skiptið var um Paul's Boutique með Beastie Boys. Algjör gull bók með miklum upplýsingum. Sagan á bak við lagið Egg Man er eins og kúlusúkk hún er svo góð. Algjör pulsa með tómat og steiktum. Hlustið á tekstann.
Núna er ég svo að lesa aðra bók í seríunni. Hún er um Live at the Apollo með James Brown.

Auðvitða ætla ég svo að enda færsluna á Stevie Wonder. Undrið er ótrúlegt. Núna er það ábreiða. Bang Bang sem Sonny Bono samdi fyrir Nancy Sinatra. Lagið er einnig af Down To Earth sem ég minntist á í seinustu færslu. Mér finnst þessi útsetning mun flottari heldur en Sinatra lagið.

Gáta færslunnar. Þessi gáta er í tvem hlutum og þið megið ekki svara nema þið skjótið á báða hlutana:

1. Úr hvaða lagi er bassalínan sem er notuð í Egg Man.
2. Hvaða karlmanns rappari rappar í þessu lagi, Intro.

Auðvitað má biðja um vísbendingar. Bannað að "gúgla" teksta brot.

kv,
Friðrik

Monday, October 08, 2007

Better than Nooyawk

1/5 Boroughs

Á laugardaginn skutlaðist ég til New York. Fimm um morguninn vaknaði ég eiturhress, út á stoppistöð, niðrí neðanjarlestina, upp í stóru lestina og beint suður. Ég fer ekki ofan af því sem ég hélt fram þegar ég var í tíunda bekk. New York bork er staður til að eyða miklum tíma. Hinsvegar hafði ég ekki mikinn tíma. Ég var mættur á Pennsylvania station 10:45 of strunsaði þá beint niðrí ráðstefnu höll. Þar var ekkert lítið í gangi.

Árlega heldur AES (Audio Engineering Society) ráðstefnu í New York. Þangað mæta öll stærstu fyrirtækin sem starfa í þessum bransa; Sennheiser, Bang & Olufsen, Sony, Dolby, Klein Hummel og Bose ásamt svo auðvitað öllum litlu fyrirtækjunum. Þessi minni fyrirtæki eru einmitt það sem maður eins og ég hef mestan áhuga á. Þetta eru þau fyrirtæki sem er auðveldast að nálgast og svo eru þau meira í rannsóknarvinnu fyrir stærri fyrirtækin. Ég talaði einmitt lengi við Frakka sem var að vinna hjá A-Volute. Þeir eru að þróa heyrnartól sem eru með 6 smágerða hátalara fyrir hvert eyra og getur þá endurkallað háþróað víðóma hljóð. Sem er mjög feitt. Frakkinn sagði við mig að þeir væru að þróa þessa tækni í samvinnu við "a very very large corporation" sem myndi sjá um markaðsetiningu og hönnun út á við. Auðvitað mátti hann ekki segja mér hvaða fyrirtæki þetta var þar sem það var "corporate secret".

Ráðstefnu Brjálæði

Ráðstefnunni var skipt upp í þrjá hluta. Á þriðju hæð var aðalgólfið (þaðan sem myndirnar eru). Þar voru fyrirtæki með bása að kynna vörur sínar og vinnu, síðan á annari hæð voru "Demo"-herbergi þar sem fá fyrirtæki voru með fámenna fundi og kynntu vörur sínar. Ég sótti einn þannig fund hjá Sennheiser og K+H. Á neðstu hæð voru svo fundir þar sem tæknilegar greinar voru kynntar. Þar voru menn frá ýmsum háskólum og einkafyrirtækjum að kynna greinar sem þeir höfðu lagt fram. Þar sá maður hvað var það nýjasta í þessum bransa. Það var nú ekki mikið sem kom á óvart þar, menn eru að skoða möguleika að þjappa skrám mismunandi saman og flokka eiginleika bíla til að þróa hljómtæki fyrir ökumenn. Einnig er mikið verið að skoða það sem er kallað "Adaptive Audio". Gott dæmi um það er tónlist í tölvuleikjum sem "fattar" það hvenær er bardagi eða róleg stund í leiknum. Ekki get ég séð það að "Adaptive Audio" hafi meiri hagnýtingu en tölvuleiki nema að menn byrji að skanna heilann í manni og spili tónlist eftir því hvernig manni líði.

Semsagt, það var mikið að sjá og einn dagur var alltof lítill tími til að ná að skanna allt en ég náði að skoða mikið og tala við marga. Þar á meðal rakst ég á Saadiq, bassaleikara Platinum Pied Pipers og pródúsent með meiru, á aðalgólfinu. Ég og Saadiq erum góðir félagar eftir að ég spjallaði við hann á Table 50 staðnum í New York daginn eftir að ég fór á tónleika með PPP, já og svo sá ég þá á Coachella. Ég sá hann samt hvergi að skoða tæknigreinarnar.

Þegar það tók að nálgast brottfarartíma skutlaðist ég út úr ráðstefnuhöllini og pikkaði upp nokkrar plötur í Turntablelab og tók svo lestina heim. Þegar ég kom upp úr neðanjarðarlestinni á Davis Square (torg þar sem neðanjarðarlestin stoppar næst íbúðinni minni) var ég rétt búinn að missa af strætó. Þar sem þetta var laugardagskvöld kemur hann bara á klukkutíma fresti. Þá tók ég þá ákvörðun að taka leigubíl heim íbúð, mjög stutt ferð, only five dollas.
Þegar ég er að segja leigubílstjóranum(hvítur Íra Boston búi) hvert ég ætla að fara lendi ég í vandamáli sem ég hef nokkrum sinnum rekið mig á hérna í Boston:

Ég: You free
Bílstjóri: Yeah
Ég sest inn
Bílstjóri:Where you goin
Ég: Bartlett street
Bílstjóri:Huh?
Ég: Bartlett Street
Bílstjóri:What?
Ég: Baaaartlett Street
Bílstjórinn botnar ekker í mér og horfir bara á mig
Ég: Bartlett stree, right of Broadway. Bartlett, Baaartlett, Barrrtlett, Bartleeett, Baaartlett.
Bílstjóri: Ah, you talkin about Bahtleht, right of Broadway.
Ég: Yeah, drive.

Stundum er mjög erfitt að ná þessum Boston hreim þannig að þessir hreinu Boston gaurar skilji mann í ákveðnum orðum. Eins og þegar ég sagði við einn prófessorinn minn að ég væri að fara til New York þá sagði hann: "You better watch out in Nooyawk". Gott dæmi er líka Harvard. Harvard er ekki Harvard, Harvard er Havadh.

Núna eru miðannarpróf í næstu viku, þá þarf maður að leggjast eitthvað undir feld. Svo verður tekið Cold Chillin með Marín.

Ég náði mér í feitar plötur í Turninum og er búinn að kippa nokkrum lög af þeim með trausta Numark ferðaspilaranrnum. Ég ætla að deila með ykkur nokkrum lögum og því nýjasta af þessu ótrúlega interneti. Þessi tækni. Þessi tækni er bara ótrúleg. Ótrúlegt hvað Ísland er lítið.

Wu-Tang hafa enn og aftur komist í sögubækurnar með því að fengið leyfi frá Bítlunum (þeim sem eiga lögin núna) að nota "While my guitar gently weeps" í einu lagi(The Heart Gently weeps) á nýju plötunni 8 Diagrams. Þetta er í fyrsta skipti sem Bítlarnir heimila "sampl". Svo mætti bara sonur George Harrison til að spila á gítar. Hann heitir Dhani. Hversu mikið af eiturlyfjum notaði Hr. Harrison í Indlandi til að skýra son sinn Dhani. Hip hop elskan Ms. Badu syngur líka í laginu.

Nýjasta afurð Dr. Dre er Bishop Lamont. Virðist ætla að verða fyrsti rapparinn sem er thug-thug-thuggin it(No stoppin) en líka með fyndna og hnyttna teksta(American Dream) frá Aftermath. Eða kannski verður þetta bara internet hype.

Dilla er ennþá dauður og er að breytast í John Coltrane rappsins. Nú dæla allir út "To Dilla" lögum hægri vinstri eins og jazz-gaurarnir gera til 'Trane. Besta lagið hingað til var frá Prince Po, U Right Here, en núna(Dillagence) er Dj Spinna kominn með flottan fnyk ásamt Phonte.

Eddie Palmieri. Fáranlega smooth laitin kóngur, píanó og "vibes", með jazzinn á hreinu. Hlustið fyrst á smá latin lingo í La malanga og færið ykkur svo á hljómsveitina sem heitir Harlem River Drive, gefur út plötuna Harlem River Drive og bombið lagið Harlem River Drive. Bróðir hans Charlie á orgeli.

Bill Dogget, maðurinn sem samdi Honky Tonk og Hold it. Náði feitri plötu með honum sem ég hef lengi langað í. Heyrið Twenty Five Miles.

The Budos Band. Meira latin brjálæði. Látið vita ef þið viljið meira með þeim. Þið eigið eftir að vilaj það. Þessi elska heitir Chicago Falcon.

Grasreykjandi geimveruelskandi brjálæðingurinn Madlib læðir sér svo inn með gervi hljómsveitina Otis Jackson Jr. Trio. Af plötunni Jewels kemur Elysian Fields.

Svo auðvitað kemur gáta vikunnar. Hérna er maður að syngja lag. Það er samið í sameiningu með Lamont Dozier og Holland bræðrunum sem framleiddu endalausa smelli fyrir Motown. Ég hef kannski náð að troða Shine upp á ykkur sem Lamont Dozier samdi(af plötunni The ABC Lost sessions). Pharoah Monch kippti fiðlunum úr Shine til að nota í Who Shot the Mayor. Allavega, hérna semur Dozier og bræðurnir lagið My World is Empty Without You ásamt Stevie Wonder. Hr. Wonder syngur það svo á plötunni Down To Earth. Gátan er: Hvaða hljómsveit samdi ábreiðu(cover) af þessu lagi sem við höfum oft bombað í byrjun kjallararalla.

Bring it.

kv,
Friðrik

Saturday, September 29, 2007

Get the paper, get the paper

Flottur hópur, takið eftir ullinu.

Þá er maður búinn að koma sér fyrir hérna úti í Boston. Það er allt brjálað að gera hérna úti. Ég er T.A.(teacher assistant) í tvemur fögum og sjálfur er ég í tvemur fögum, þannig nóg að gera. Lítið er á stefnuskránni næsta mánuðinn nema það að ég er að fara bregða mér í dagsferð til New York á næstu helgi. Þar er ég að fara á ráðstefnu Audio Engineering Society þar sem maður ætlar að skoða hvað menn eru að gera í þessum bransa. Síðan kemur Marín í heimsókn í október og þá verður haft mjög huggulegt.

Ég ætla að reyna vera duglegur að blogga og henda inn einhverjum myndum. Ég er búinn að henda inn myndum frá fyrstu dögum hérna úti á netið og finnið þið þær í gegnum hlekk hérna hægra megin.

Svo ætla ég að deila með ykkur nokkrum myndum til að sýna ykkur hversu vel við strákarnir myndumst. Þetta er bara rugl hvað við myndumst vel.

1.Dæmi: Bjarni Þór í kjallarnum, júní 2007

2.Dæmi: Jón Árni við Þingvallavatn, ágúst 2007

3.Dæmi: Pálmar við Þingvallavatn, ágúst 2007

4.Dæmi: Hjörleifur á hóteli við Laugarveginn, desember 2005

5.Dæmi: Arnar Freyr á 11-unni, júlí 2004

6.Dæmi: Hrafn á Langholtsveginum, október 2004

7.Dæmi: Ég sjálfur, júní 2007

Meira blogg þegar líður á vikuna.

And then there was Jimmy Two Times, who got that nickname because he said everything twice, like:
I'm gonna go get the papers, get the papers.
500 kall fyrir þann sem nefnir myndina.

kv,
Friðrik