Monday, February 27, 2006

Frikki Goes To Hollywood

Damn, þá er maður mættur til baka í Santa Barbara eftir ferðina til Los Angeles. Ferðin var mjög vel heppnuð og settum við bræðurnir varanlegt mark okkar á borgina.
Við vorum búnir að skrá okkur inn á hótelið í Redondo Beach(algjört túristaúthverfi í borginni) um tvöleytið á föstudaginn og vorum ekkert að tvínóna við hlutina heldur bombuðum við okkur beinustu leið niðrí bæ. Við vorum með GPS galdur í bílnum sem varð til þess að við tókum aldrei vitlausar beygjur nema þegar við vorum algjörlega starstruck af borginni. Við byrjuðum að fara í áttina að Hollywood Boulevard niður að kínverska leikhúsinu, tókum myndir, pósuðum, heilsuðum upp á fólkið og vorum bara almennt sáttir. Á leiðinni í bílnum á hraðbrautinni benti Jóhann mér á byggingu sem ég held mikið upp á ásamt mörgum öðrum, en það er Capitol Records turninn sem situr steinsnar frá Hollywood Bouleward, það var mega nice, og röltum við upp að byggingunni og tókum nokkrar myndir. Fyrir mig að sjá Capitol Records bygginguna var eins og fyrir Adda að sjá Marmot höfuðstöðvarnar. Eftir að hafa grandskoðað miðbæinn, ákváðum við að skella okkur í bíó í kínverska bíóhúsinu(okkur fannst það viðeigandi) sáum þar klassa myndina Syriana sem ég hafði lengi ætlað á, mega nice mynd. Eftir bíóið fórum við aftur á Redondo beach, þar skönnuðum við helstu barina og stóð þar hæst upp úr bar sem var með 77 bjóra á krana og 777 innflutta bjóra. Við gerðum góða tilraun við að prófa sem flesta en ákvaðum að klára ekki upptalninguna til að hafa orku í laugardaginn.
Laugardagurinn var tekinn snemma og var byrjað að fara í Universal city. Þar er Universal kvikmyndarverið ásamt Universal skemmtigarðinum. Ætlunin var sú að fara bara í skoðunarferð um kvikmyndaverið en til þess varð maður að kaupa aðgang að skemmtigarðinum, það var ekki hatað og skelltum við okkur í skoðunarferð þar sem við sáum set (það eru sviðsmyndir, movie talk skiljiði) sem hafa verið notaðar í fullt af myndum. Sáum meðal annars sviðsmyndina sem er alltaf notuð í Desperate Houswives þáttunum, flugslysið í War of the Worlds, Pshyco húsið og margt margt fleira. Þetta er allt á myndunum. Síða rúlluðum við í tvö til fimm tæki í skemmtigarðinum og það var næs.
Eftir Universal gerðum við okkur líklega til að fara í svipaða skoðunarferð hjá Warner Bros. en þar var allt lokað, shame on them. Þá skutluðu menn sér á aðra merkilega staði í borginni eins og Beverly Hills, Sunset Strip, Rodeo Drive og á fleirri staði. Síðan komum við við (viðvið?) í Stüssy búðinni(auðvitað) og tjekkuðum á því hvort allt væri ekki í lagi þar. Merkilegast fannst mér að fyrir ofan Stüssy búðina var risastórt auglýsingaskilti sem stóð á "R.I.P. James 'Dilla' Yancey". Já það fannst mér merkilegt, þeir skilja þetta sem vita þetta.
Planið var svo að kíkja á jazz stað í borginni með alvöru jazz(ekki einhvern lame lobby jazz). Ég var búinn að skanna einhverja staði, fyrsti staðurinn sem við tjekkuðum á, Catalina bar, var nákvæmlega það sem við vorum að leita að, flottur matur, klikkuð hljómsveit og alles, en að borða þar og hlusta kostaði einfaldlega meira en við réðum við þannig ég náði einu trompet sólóu áður en maður var beðinn um að fara. Næsti Jazz staður var svo skítugur að við meikuðum ekki að testa hann. Þá var jazzinn settur á hold og rúlluðum við á funk-kvöld sem plötufyrirtækið Stonesthrow er með vikulega í Hollywood, þar snéri Egon skífum og vorum við bræðurnir hæst ánægðir með grúvið.
Sunnudagurinn fór svo algjörlega í Venice Beach. Þar mun ég eiga heima í framtíðinni og tjilla feitt. Sá staður fannst mér alveg mega næs, öll mín þekking á Venice Beach úr Tony Hawk leiknum stóð undir sér og sáum við þar flotta breikara, adidas fótbolta mót, muscle beach og margt fleirra. Stefnan er að reyna að tjekka á henni aftur áður en maður kemur heim, í sumar helst þegar mannlífið er ennþá meira.
Núna er maður bara kominn aftur heim í íbúðina og það rignir sem aldrei fyrr. Jóhann has left the building og ég er að fara í próf í næstu viku. Allt verður á fullu út vikuna og það er bara hið bestasta mál. Allavega, ég held að það sé komið nóg í bili, maður þarf að fara og feed the idiot box.

Friðrik

P.S. Ég fann Nolda stjörnuna en var ekki með myndavél, lagði á minnið hvar hún er og það verður gengið frá þessu seinna.

1 comment:

Anonymous said...

je Venice beach rúlar... strandvarðagellurnar skemma heldur ekki fyrir