Monday, March 06, 2006

I... am Tetsuo


















Allir flottir í 20 ára afmælinu mínu og allar flottar í stúdentaferðinni

(eina laumu rassa myndin mín úr stúdentaferðinni)
Ég fór í próf í morgun. Ég fór rennblautur í próf. Ég tók þá gáfulegu ákvörðun að bíða með það að leggja af stað í skólann, vera flottur á því, bíða eftir því að rigningin stytti upp og renna svo heitur í hlað á hjólinu mínu. Það stytti ekki upp, ég þurfi að að hjóla á milljón yfir tröllapolla og sýru til að mæta á réttum tíma. Ég komst á réttum tíma en blautur í gegn. Þetta hafðist.
Þessi staður má eiga það að það rignir sjaldan, bara búnir að vera um það bil tveir rigningardagar síðan ég kom út. En þegar það rignir, þá rignir sko almennilega.

Eins og ég talaði um í seinasta bloggi, þá kíkti ég á RZA seinasta fimmtudag. Hann er á svona háskólatúr um Bandaríkin til að kynna bókina sína; The Wu-Tang Manual(nafnið er mjög fyndið). Þetta var flott, það var ung kona, sem er prófessor í ensku, african-american studies og fleiru sem sat með honum upp á sviði og spurði hann ýmsum spurningum. Hann var að segja sögur af því hvernig Wu-tang varð til og öll spekin á bak við þetta, flottur strákur. Síðan var komið að því að svara spurningum úr salnum. Þær voru misgáfulegar. Áheyrandahópurinn samanstóð aðallega af trylltym fratboys sem mættu í GZA liquid swords peysunum sem þeir keyptu fyrir sjö árum sem spurðu spurninga eins og: "How much weed do you smoke" og klassíska ósvarnalega spurningin "What is your best track". En þeir komu með margar góðar og það var mjög gaman að fylgjast með þessu.

Maður er alltaf að kynnast meira og meira af fólki hérna úti. Ég komst samt að því að ég er gjörsamlega óhæfur í því að giska á það hvað fólk er gamalt. Ég var að gera heimadæmi með tvemur öðrum í öðru eðlisfræðifaginu. Annar þeirra heitir Chris, stór gaur sem var með óvenjulega mikið á hreinu, miðað við það að ég sirkaði á það að hann væri einu eða tvemur árum yngri en ég. Síðan sagði hann mér að hann væri 24 ára með B.S. í rafmagnsverkfræði. Það útskýrði margt. Það virðist vera svona með flesta í eðlisfræðinni. Annað hvort eru þeir "super seniour" old cats að dunda sér í háskóla, eða bara gaurar eins og ég að bomba sér í gegnum þetta. En seinni týpan virðist vera í áberandi minnihluta.
Einn karakter sem ég verð að minnast á er gaur sem ég man ekki hvað heitir. Asískur (asian-american eða eitthvað þannig) gaur sem er með mér í verklegum tímum. Það atvikaðist þannig að við vorum á báðir á leiðinni í rec center(lyftingarstöðin hérna á svæðinu). Við vorum samferða og spjölluðum heilmikið. En þegar við erum í búningsklefanum og ég er að klæða mig í íþróttafötin, þá byrjar gaurinn að syngja. Og ekkert venjulega. Hann er ekkert að syngja Stebbi stóð á ströndu eða eitthvað þannig. Gaurinn syngur af fullum krafti einhverjar mega aríur og óperur sem hann hlustar á. Hann hefur hlotið viðurnefnið Óperudraugurinn. Ég þurfti að halda niðrí mér hlátrinum og hélt að hann væri bara eitthvað að flippa í þetta eina skipti. En nei nei. Ég hef hitt hann núna nokkrum sinni þarna í ræktinni, og í hvert einasta skipti sem maðurinn stígur inn í búningsklefann halda honum engin bönd. Veit ekki alveg hvað hann er að pæla þar sem hann er ekkert besti söngvari sem ég hef heyrt í.

Núna fer að líða að lokaprófum og svona þannig þetta fer allt að fara á fullt. Núna er aðalverkenfið að stúta skilaverkefnum í stærðfræðikúrsinum. Það er flott. Seinni önnin bara að fara byrja, þetta hefur liðið ekkert smá hratt.

Síðan er ég að pæla að hafa þetta svona standard, að setja inn polaroid myndir sem voru teknar með gömlu vélinni með flestum færslum. Mér virðist að fólk sé ekkert að hata það.
Allavega, ég ætla að rúlla, ekkert vera feiminn við það að setja helstu scoopin í kommentakerfið hérna. Þá sé ég best hvern ég á að hringja í þegar ég bjalla á skype-inu.

Lög daganna:
Roy Ayers - Raindrops keep falling on my head
Sergio Mendes - Capoeira Do Brasil
King Geedorah - The next level

Seinna,
Frikki

P.S. Hversu fyndið er það að Three 6 Mafia hafi fengið óskarsverðlaun?

12 comments:

Anonymous said...

Mér fannst sviðsmyndin best.. Og Palli lítur út fyrir að vera sjö ára á þessari mynd.

Anonymous said...

Ég held með þessum asíubúa og jafnvel að ég taki hann mér til fyrirmyndar, hvað er betra en að syngja í sturtu?

Anonymous said...

Vá hvað mig langar að hitta chongarann í búningsklefanum. Þetta var setning sem ég bjóst ekki við að segja á ævinni:) Sammála með Three 6 Mafia, einum of fyndið. Akademían að reyna að sýna eitthvað.. og hversu ógeðsleg er Dolly Parton, örugglega búin að taka nokkur rifbein úr sér og setja í brjóstin, og láta massaÞór teygja allverulega á andlitinu! Mittismál = 10 cm, brjóstmál = hringvegurinn....

Anonymous said...

Já, hvað get ég sagt Marín.....
Nonni ég hvet þig til þess að syngja óperur í búningsklefanum, það væri flott

Frikki, Keep it cool

Anonymous said...

Mesti sjokkurinn við að Tree 6 mafia vann er að þetta lag var leiðinlegt... en frekar fyndið að sjá þá í göllunum og allir aðrir uppáklæddir!!!

Anonymous said...

Nonni það er bara flott að vera 7 ára. Good times

Anonymous said...

Ég vil fá mynd af þessum asíska...

Anonymous said...

já ég vil líka sjá myndir af þessum asíska

Anonymous said...

Ég vil fá að heyra tóndæmi

Anonymous said...

Ég vil fá að heyra tóndæmi

Anonymous said...

Addi spurning hvort þetta sé besti vinur okkar Siggi G frá vín. Lýsingin fittar alveg við hann.

Anonymous said...

Já það gæti vel verið, það leynist Siggi G í öllum útlöndum