Sunday, March 26, 2006

Vodka í auga

Inclest strákarnir kveikja í gleðinni
Prófin búin og springbreak byrjað. Ég sá til þess að trompa prófessorinn í seinasta prófinu og eftir það tók við algjört chill. Á fimmtudag var hefðbundinn búinn-í-prófum bjór drukkinn og þar sem það var bara fimmtudagur var ákveðið að skella sér í bíó. Skellti ég mér á H fyrir Hefnd með íslendingunum Baldvini og Gumma. Sú mynd virkaði vel og mæli ég með henni.
Á föstudeginum var svo seinasti prófdagur í skólanum, ég ákvað að halda upp á hann með því að sofa til þrjú. Maður hatar það ekki. Kvöldið byrjaði svo rólega, byrjaði ég á því að kíkja niðrá Study Hall með Gumma, besti barinn í nágrenninu. Eftir það var svo kíkt í partí í húsi sem var í götunni fyrir neðan íbúðina. Þar spilaði hljómsveitin Inclest hágæða pönkrokk og undi ég mér þar vel. Eftir að bandið var búið að spila með tilheyrandi mosh pit, olnbogaskotum og áfengisskvettum kíktum við í partý niðrá strandargötunni. Þar var talað við allskonar fólk og var mikil skemmtun. Síðan dreif maður sig heim áður en löggan kom til að handtaka fólk. Tók nokkrar myndir, set þær inn, en vegna sífelldrar baráttu við flassið komu þær misvel út.
Vodka á leið í auga
Helgin er svo búin að vera róleg, vakna seint, borða morgunmat, tjilla, alveg eins og fríið á að vera. Nú er komið á hreint að the ultimate ferðatvíeyki Hildur Sigrún og Danni munu heimsækja mig í enda apríl. Þau munu ferðast með mér í eyðimörkina á Coachella festival. Það verður eflaust topp hamingja.
Á hverjum morgni tek ég daginn rólega og borða seríósið mitt yfir CNN. Ég hef alltaf haldið því fram að CNN sé fínasta fréttastöð en eftir því sem ég horfi meira á hana sé ég að hún er með alveg jafn lágkúrlegar fréttir og aðrar stöðvar. Um daginn náði hún hinsvegar að toppa allt í sjónvarpsskemmtun sem ég hef séð. Á morgnana er svona venjulegur fréttatími þar sem par af þulum dúndrar út fréttum. Ég sit sallarólegur og horfi á Keishu Cole og hinn gaurinn flytja fréttir. Myndavélinni er beint að þeim þannig að þau sitja bæði í mynd en bara Miss Cole er að flytja frétt. Svo gerist það. Ég tek eftir því að gaurinn fær þennann skelfingar svip á sig. Hann byrjar að skýla andlitinu og svo segir hann bara: What the hell is going on, I´m out of here. Mér brá soldið að sjá svona picture perfect kjálkabeins mann blóta í bandarísku sjónvarpi. En Miss Cole situr og flytur fréttirnar óáreitt: Ladies And Gentlemen, it seems that we have a fire in the studio. Þá koma svona baksviðs kallar og hjálpa gaurnum út og reyna reka Miss Cole út, en nei nei. Miss Cole vill bara flytja fréttirnar. Hún heldur áfram að fara yfir helstu fréttir og segir að hún gefi okkur update um leið og þau viti meira um upptök eldsins. Þá hrynja niður ljóskastara í stúdíónu. Miss Cole: Uh yes, it looks like the fire is spreading, we will keep you updated as events become clearer. Þá tekur einn baksviðs kallin sig til og tekur utan um hana og heldur bókstaflega á henni út. Síðan var myndavélinni súmað út og sá maður að partur af loftinu var bara bókstaflega alelda. Já það verður ekki tekið af Miss Cole, hún flytur fréttirnar no matter what.

This is Fridrik reporting from Spring Break

20 comments:

Anonymous said...

Vantaði bara að úsending yrði rofinn og seint beint út frá hinu horninu á fréttastofunni sem "breaking new"

Anonymous said...

orðið á götunni er að Danni ætli að pulla move við Hildi Sigrúnu í flugvélinni á leiðinni út og gera ferðina þannig ógleymanlega.
Sel það ekki dýrara en ég keypti það

Anonymous said...

Orðið á götunni er að Hjölli sé kona. Sel það dýrar en ég keypti það, því ég er alltaf að græða.

"Hvað hef ég að tapa, lífið mitt er glatað"

Anonymous said...

átsss, var nú bara að vitna í saklausar djóks lyfitingarsamræður míns og Daníels.

Anonymous said...

hehe kanínan og hrökkbrauðið!! Slagur Slagur

Anonymous said...

Stress? STRESS?

Anonymous said...

ég hefði átt að skreppa vestur í fríinu þínu og þér hefði kannski tekist að draga mig með í golf.

Anonymous said...

Dont hate the player, hate the game....

Anonymous said...

Keisha Cole er obbboðslega góð fréttakona, ein af mínum uppáhalds

Anonymous said...

So interesting site, thanks!

Anonymous said...

Hello there! Just want to say that I find your site enough interesting for me. Usefull information and all is good arranged. Thank you for your work. I will visit

Anonymous said...

This is a wonderful wealth of information. Good Luck!

Anonymous said...

This is a wonderful wealth of information. Good Luck!

Anonymous said...

It�s my first visit to your website. After just a quick browse, I�m really impressed!

Anonymous said...

Your site is very cognitive. I think you will have good future.:)

Anonymous said...

Hello there! Just want to say that I find your site enough interesting for me. Usefull information and all is good arranged. Thank you for your work. I will visit

Anonymous said...

Just found your home page its great, it looks like you folks do great service keep up the good work.

Anonymous said...

http://fdsfggfdfg.com kukdyjfdsgsfdafgrdhtjkgjhfd

Anonymous said...

Thanks











Anonymous said...

Nothing seems worth thinking about. Today was a total loss. I just don't have much to say lately. I can't be bothered with anything.
buy cheap tramadol