Sunday, March 12, 2006

We be that...afrodisiac

Tölvuvesen er örugglega eitt það leiðinlegasta sem einhver getur lent í. Það er allavega á toppnum ásamt bílaveseni. Já ég var að vinna í tölvunni minni, salla rólegur að bomba saman ótrúlega góðu stærðfræði verkefni í MATLAB, þegar talvan slekkur bara allt í einu á sér. Ég var hissa en ekkert svo, þar sem talvan var búin að hegða sér undarlega undanfarið, en síðan þegar ég ætlaði að kveikja á henni þá var hún bara eins og Lalli Johns gone cold turkey, semsagt í rugli. Allavega, þá er ég búinn að kaupa nýja vél, hewlett packard veisla, og virkar hún vel. Það var hægt að flytja öll gögn yfir, þannig ég fékk öll MATLAB forritin mín sem ég var búin að smíða ásamt myndum og tónlist. Besta við þessa nýju tölvu að hún er gjörsamlega hljóðlaus, annað en móðurskipið sem dó í gær.
Annars er það í fréttum að lokaprófin á þessari önn eru eftir sirka tíu daga, það er gúdsjitt, maður er vel stemmdur og svona, svo þýðir það líka að Spring break byrjar eftir svoan sirka tólf daga. Stefnan er að gera ekki nokkuð skapaðann hlut í spring breakinu fyrir utan það að liggja í sólinni, lesa gúdsjitt bækur og síðan er ég að stefna á það að hefja brimbrettaiðkun í fríinu. Þetta kemur alltsaman í ljós.
Síðan var það ákveðið núna í vikunni að ég ætla að bomba mér á tónlistarhátíðinna Coachella sem er haldin hér í Californiu á hverju ári. Hún verður í eyðimörkinni vestur af L.A.. Hún er í enda apríl og er listi hljómsveita sem standa uppúr alls ekki slæmur. Það er hægt að sjá lista yfir allar sveitirnar á www.coachella.com. Það verður flott að sjá menn eins og Common, Murs, Gnarls Barkley, Atmosphere, Depeche Mode, Madonna, TV on the Radio og svo Damian Marley. Ekki skemmir fyrir að Daft Punk verða á svæðinu og ekki bara á svæðinu heldur í "the dance tent". Það hlýtur að vera spes nonnasósa.
Ég er búinn að vera taka fleirri myndir af þessum helstu hérna úti, bomba þeim örugglega inn á næstu dögum, þar á meðal verður mynd af óperudraugnum Larry. Eitt hérna í sambandi við commentin sem Addi og Hjölli áttu um Sigga G. sem var með þeim úti í vín. Addi, ég fann vídeóið af Sigga G. sem þú sendir mér og gott ef ekki að Siggi og Larry séu týndir bræður. Eru örugglega með sitthvorn helminginn af medalíu, og ef þeir sameina hana þá verða þeir ofurtenórar. What the fuck, sýra, ég ætla að beila.

Friðrik

P.S. Get ekki sett in mynd núna, kerfið eitthvað skrýtið.

6 comments:

Anonymous said...

Siggi G! Siggi G! Siggi G! Siggi G! Siggi G! ég ætla að finna minn Sigga G. og koma með hann í heimsókn til ykkar! Þá geta hinir týndu bræður loksins hist eftir langa fjarveru, syngjandi til hvors annars.. Það verður fallegt að sjá, fæ kannski Jón Ársæl til að joina og gera þátt um þetta.

Anonymous said...

Var móðurskipið nokkuð það gamalt? var það ekki bara eins árs eða svo???
Maður væri nú til í að kíkja aðeins á spring break og komast úr kuldanum hérna heima.
Góð pæling annars með medalíuna, þú hefur ef til vill horft of mikið á teiknimyndir.

Anonymous said...

Talandi um týnda bróðurinn. Kasta þeirri kenningu fram að týndi bróðir Frikka sé að leika í deigluauglýsingunni hjá Glitni.

Anonymous said...

Þetta er gott dæmi um það, Hjölli minn, hvað þú tekur vel eftir! Þetta er auglýsing um DÆLUNA frá SÍMANUM
en það er rétt, frikki var þessi mynd tekin af þér áður en þú fórst út eða flaugstu heim í myndatöku og lést engann vita??

Anonymous said...

Já núna kveikir maður, ég skildi ekkert hvað Hjölli var að tala um... Kominn til Kaliforníu og byrjaður að leika. Flottur!

Anonymous said...

Bara smá leikur hjá mér, chekka hvort þið væruð nóg og skörp til að geta verið vinir mínir.