Tuesday, March 21, 2006

Zone Z-Z-Zone Out

Óperudraugurinn að trylla líðinn
Tvö próf búin og eitt eftir. Lærdómur er í hámarki og bið eftir páskafríi er í hámarki. Ég á bara eftir próf í tölulegri greiningu og búinn með eðlisfræði fögin. Næsari.
Ég sit hérna í íbúðinni að klára 10 blaðsíðna karakterlýsingu sem ég þarf að klára fyrir morgun daginn í bókmenntafaginu. Gengur vel, kominn með 8 blaðsíður af stórkostlegum senun og lýsingum. Ég var að fara yfir glósurnar mínar í því fagi og þar var verið að tala um hvernig atburðir í bókmenntum eru notaðir til að kveikja í minningum sögupersóna og búa til svona afturhvarf (flashback skiljiði).
Ég fór eitthvað að pæla í þessu og var að hugsa um svona hvernig það er þegar maður hlustar á lög þá fer maður sjálfvirkt að hugsa um ákveðna atburði eða fólk sem maður þekkir. Ég pældi aðeins í því, og þegar ég hugsa um hvaða tónlistarmenn minntu mig á ákveðið fólk var það ansi athugavert. Tengingin hefur ekkert að gera með tónlistina, bara einhverjar samræður eða eitthvað sem minnir mig á þetta. Ég skora á ykkur að reyna finna tenginuna:
  • Pabbi = Sigurður Bjóla
  • Mamma = Ella Fitzgerald
  • Jóhann = Zapp & Roger
  • Nonni = Hrekkjusvín
  • Hrafn = Johnny Cash
  • Palli = Quasimoto
  • Bjarni Þór = Brain Police
  • Addi = Björk
  • Hjölli = Chris Martin
  • Marín = Ludacris
  • Sigga = Posdnous
  • Bestla = Jim Morrison
  • Gríma = Dexter Wansel
  • Rut = Subterranean
  • Karen = Mínusbarði
  • Hildur Sigrún = Smiley (The Ghettochild)
  • Maggi = Ragga Gísla
  • Danni = Cam'ron
  • Dabbi Stóri = Lalo Schifrin
  • Björg = Kiss
úff, Þetta var gott space out. Núna er spurning um að klára þetta verkefni. Kem með almennilegann póst þegar prófin eru búin.

later:.

10 comments:

Anonymous said...

Ég veit náttla ekkert hvaða lag þetta er, hlýtur samt að vera eitthvað fabjúlös, því ég er æðisleg.

En ég sé alveg aríurnar koma útúr þessum dreng, hlakka til að fá að hitta hann í lok APRÍl :D

Og frikki, það er bara eitt lag sem minnir mig á þig:

Your apartment is your pad
Your old man is your dad

Gangi þér vel í prófunum elskan,

Yo

Anonymous said...

Frikki = crazy - gnarls barkley

Anonymous said...

Geturu sagt mér afhverju Xzibit minnir mig á þig, Frikki?

Anonymous said...

er séns á smá upptöku frá Óperudraugnum, ég verð eiginlega að fá að heyra í honum syngja......

Anonymous said...

Auðvitað er pabbi Sigurður Bjóla..........of fyndið.

Anonymous said...

Alveg eins og Siggi G

Anonymous said...

ég ætla allavega að vona að ég minni þig ekki á hringjarann i Notre Dame....

Anonymous said...

hey ..! á ég ekkert lag eða tónlistarmann?

-k

Anonymous said...

Friðrik = Being For The Benefit Of Mr Kite

Anonymous said...

Frikki = Thelonious Monk