Saturday, May 13, 2006

Nammiland

The media is like the weather, only it's man-made weather
  • Ég sá mann vera handtekinn í skólanum um daginn. Hann situr á stéttinni í svartri peysu sem stóð á stórum hvítum stöfum TRUST JESUS. Löggan lét hann sitja á stéttinni á meðan þeir lásu yfir honum handjárnuðum. Hann hafði víst, ásamt félaga sínum, labbað á útifund sem var að tilefni Gay Awarness week í skólanum og byrjaði að öskra: Faggots go to hell.
  • Á leið minni úr fyrirlestri á leiðinni í verklegan tíma sá ég fimm löggur. Bara venjulegur dagur. Alltaf gaman að sjá fimm brúsa af piparúða, fimm kylfur og fimm skammbyssur á leiðinni í tíma.
  • Það er allt í rugli út af því að einhver skrifaði 'Fuck Niggers' á baðherbergishurð í einni íbúðablokkinni á háskólasvæðinu.
  • Núna er kveikt í sófum á hverri helgi í Isla Vista. Það er víst betri hugmynd að brenna þá frekar en að gefa þegar stúdentar fara heim í sumarfrí.
  • Systrafélögin héldu strandblakmót til styrktar einskonar athverfi kvenna hérna á svæðinu. Mótið var aðallega til að vekja athygli á hárri nauðgunartíðni í skólanum og almennum kynferðisglæpum. Stelpurnar pössuðu sig á því að klæða sig sem minnst, þótt það væri skýjað og frekar svalt. Plötusnúðurinn passaði sig á því að spila helst bara vinsælasta hip hop tónlistina með mjög svo viðeigandi tekstum fyrir svona mót.
  • 17 ára strákur var stunginn og drepinn hinum megin við hraðbrautina í gær. Hann var víst í gengi og var stunginn í sambandi við eitthvað stríð á milli gengja. Gengi í Santa Barbara. Hver hefði giskað á það
  • Arnold mætti á bókasafnið í skólanum á seinustu helgi. Hann vildi bara láta alla vita að hann er að skerða fjárlög til menntamála í Kaliforníu.
  • Bush er í fríi
later:.
Friðrik

6 comments:

Anonymous said...

Það mætti halda að þú værir í Breiðholtsskóla...
Kom Noldi í alvörunni í skólann, var ekkert verið að skora á hann í sjómann eða eitthvað? skora haha já það er eitthvað sem frikki veit hvað er;)

Anonymous said...

greini smá þreytu á þeim í Ameríku. Hlakka til að sjá þig heima krúttið mitt

Anonymous said...

Sumir segja að að sé kostur að Bush sé í frí, ? um Arnold hvort það gildi sama um hann

Anonymous said...

Addi þú ert með meiri tölvunördum, alltaf með fyrsta og flestu skrifin. Ánægður með þig..

Vorum annars áðan í eitraða verkfræðipróflokarallinu(gott orð) að tala um klámkjallarann og góðar stundir þar. Það verður ekki leiðinlegt að fá týnda soninn heim...

Anonymous said...

Var eitthvað verið að smassa í blakinu??

Anonymous said...

Þú ert nú meiri gaurinn