Nafnasamkeppni Klámkjallarans er nú í hámarki, í miðjum próflestri og 25 stiga hita. Ýmsar tillögur hafa borist að nýju nafni og opnunar teiti:
- Ölkjallarinn - frá Eigundum - Á svæðinu útdeilir Lárus Hólm special edition kampavíns moijito og segir fólki afhverju Sigurður Bjóla og Valgeir séu bestir í heimi. Einnig verða sagðar hetjusögur af Valsmönnum að taka hetjuveltur. Jóhanna útdeilir viðeigandi klæðnaði og skýtur alla í kaf með fimmaurabröndörum sem vilja ekki hífa upp um sig buksurnar.
Leynigestur: Hemmi Gunn - Lúbarinn - frá Pálmari - Á svæðinu verður Pálmar að botna allar setningar með samhengislausum bröndörum. Jón Árni verður með kossabás hjá skrifborðinu og kyssir þá sem vilja fyrir bjórsopa. Samningaviðræður eru hafnar við Davíð um að koma og sýna heimsklassa luftgitar sólo og "Metallica loves you" öskur.
Leynigestur: Kalli Lú - Sprengjuskýlið - frá Arnari Frey - Á svæðinu verður Hrafn búinn að setja upp diskóljósin sín og Hjölli verður með "Hverjir eru með hverjum" upplýsinga bás í tröppunum. Arnar mun segja svaðilfara sögur af Prikinu og sýna fólki hvernig á að drekka hot sauce beint úr flöskunni. Bjarni Þór mun standa upp í bláa sófanum og kenna fólki Massadansinn.
Leynigestur: Páll Óskar - Boom Boom Room - frá Jóhanni - Á svæðinu verður Jóhann að sýna gamla takta á stálhjólunum og sýnir fólki hvernig á að dansa "house" dansa. Go Go stelpur verða í öllum hornum og Rut mun deila út slúðri til þeirra sem vilja. Eitt slúður kostar einn Cosmopolitan. Mælt er með því að mæta í þröngum fötum og búast við Daft Punk og Carl Cox veislu.
Leynigestur: Gummi Gonzales - Á Horninu - frá Sigríði - Á svæðinu verður fimleika hestur og sýnir Sigga hvernig útbrunnar fimleikasjörnur fara í flikk flakk. Einungis verður drukkið bjór og skipt verður í lið. Vinningsliðið fær koss á kinn og tapliðið fær ókeypis aðgang að Seltjarnarneslauginni í heilt ár.
Leynigestur: Samúel Örn - Le Chateau - frá Grímu - Á svæðinu verður fólk að hegða sér því annars fær það enga osta. Boðið verður upp á Bordeaux rauðvín og súkkulaði frá Sviss. Strákum er skylt að mæta í jakkafötum og vera sætir. Einungis verður hlustað á Edith Piaf og talað með útlenskum hreim. Þýska bönnuð.
Leynigestur: Gerald Depardieu
Atkvæðagreiðsla og nýjar tillögur fara fram í kommentum
Friður,
Friðrik
Friðrik

19 comments:
Hvernig væri að fá bæði hetjuna í rauðu sundskýlunni og how are you tomorrow gæjana til að vera á svæðinu, hetjan í dyrunum(fokkar enginn í honum) og hinn á barnum að reyna við saklausar stúlkur og setur surprise í drykkina þeirra
Ælan, Ölbaðstofa eða Ölbaðstofan Ælan
hvernig hljómar það??
Hef heyrt að Pálmar sé orðinn helvíti áhugasamur um garðrækt og óski þess að fá að halda uppi garði þar sem hann mun planta öllum þeim stjúpum sem hann finnur á förnum vegi...
Ég styð síðustu tillögu pálmars, Ölbaðstofan Ælan er eina rétta nafnið. Þar sem menn eins og Kiddi dauði láta lífið í innkeyrslunni og æla upp á bak.
flottur hjölli, með allt á hreinu
reyndar fékk ég stóru garðabókina í stúdentsgjöf en ég skipti henni því miður
Sprengjuskylid er my cup of tea
Pálmar hefur tekið upp nafnið Stjúpfaðirinn og stofnað utandeildar liðið í handbolta Grænir Fingur.
múhaha
Mitt atkvæði verður eila að fara í sprengjuskýlið, en svo eftir ansi marga margþráða getur skýlið breyst í Johnny´s Boom Boom Boom ... I want you in my room, þegar Hildur sigrún og Karen Lind eru komnar á gólfið í eggjandi og hraðan Suckin on my titties dans... svo ef liggur vel á mönnum og aulahúmorinn allsráðandi eftir vel heppnað hallærispöbbarölt, er kannski hægt að negla sér á lúbarinn þar sem er eilíft uppistand hjá Stjúpföðurnum!
Heyrst hefur að addi og hjölli séu á feitu sponsi hjá Smart og McDonalds
Heyrst hefur að Addi og Hjölli séu á feitu sponsi hjá McDonalds og sólbaðsstofunni (S)ælunni
Heyrst hefur að Pálmar hafi verið ráðinn sem sérlegur Stjúpu ráðgjafi hjá Blómavali eftir að hafa suðað í stjórn Blómavals um langa tíð
Hey Pálmar, ég er var að reyna að ná í þig í síma en fann ekki númerið þitt, en rakst á þig hér! Ég var að pæla hvort þú ætlaðir ekki að koma með á garðyrkjusýninguna í Hveragerði um helgina? :)
Addi ég frétti að þú gætir búið til McBurger með jónssyninum
Þeir sem endilega vilja tengja Johnny´s Boom Boom Room with miður gáfað og áhugavert froðupopp frá hljómsveitinni Vengaboys er bent á að horfa á kvikmyndina Life með Eddy Murphy.
Mer finnst Vengaboys mun fyndnara
Ich finde Der Keller von Frederick, Die Bierstube aus Langholt oder Das Wunderwelt auf Budvar gute Name
Zum Wohle
helgarferð til Baghdad í júlí - er einhver maður??
Mér er hætt að lítast á blikuna. Legg til að opnaður verði nýr og betri staður. Templarahöllin. Spiluð verði framsóknarvist milli kl. 15 og 17 á sunnudögum. Boðið verður uppá malt, appelsín og prins póló. Einu sinni í mánuði verur dansmennt. Þá verður dansað í haldi. Þeir sem mótmæla fá ekki frítt inn!!!!!
Mér líst mega vel á það, nema kannski "framsóknar"vist!!
Post a Comment