Á þessum lista eru margir góðir hlutir, sumir hafa komið og farið en aðrir eru enn við lýði. Ofarlega á þessum lista er t.d. ristaðbrauð ristað með engu nema smjöri og ísköld kókómjólk, lag númer 3 á lögum unga fólksins, Kattholt og ýmist annað.
Það eru samt fáir hlutir sem komast jafn ofarlega og kvikmyndin Með Allt á hreinu. Þessi mynd er svo mikið rugl að það er fáranlegt. Flottar setningar sem vella upp úr mönnum eru svo góðar, flott lög, ógeðslega ljótir hljómsveitabúningar, Flosi Ólafson, lélegur söguþráður, Eggert Þorleifsson. Allt þetta sameinast í suðupott af yndislegri gegnsýrðri tónlistar veislu:
Það eru samt fáir hlutir sem komast jafn ofarlega og kvikmyndin Með Allt á hreinu. Þessi mynd er svo mikið rugl að það er fáranlegt. Flottar setningar sem vella upp úr mönnum eru svo góðar, flott lög, ógeðslega ljótir hljómsveitabúningar, Flosi Ólafson, lélegur söguþráður, Eggert Þorleifsson. Allt þetta sameinast í suðupott af yndislegri gegnsýrðri tónlistar veislu:
,,,,langferðabíll. Ha, föttuði þennann?
Gleymið því rýjurnar mínar. Í kvöld mun Stuðmenn sitja einir að kjötkötlunumEkki aldeilis kall minn, ekki eftir fyrirhöfnina sem stelpurnar hafa lagt í þetta. Yfir!
Svona skinnin mín, það voru Stuðmenn sem voru ráðnir og það strax á útmánuðum, Gærurnar voru einungis hugsaðar sem hækjur og hjálpargögn og hananú. Skipti!
Á Atlas og Muller leggjum við þrotlausa stund
Hvar er Guðfinna búktalari?Guðfinna. Við vorum með Ingvar og Gylfa!
Ég færi heljarstökk aftur á bak, af litlu bretti
Ég get aldrei sýnt mig aftur á billanum, eins og ég hafði gaman að því
9 comments:
Sá vægir sem skitið hefur meira...
Þetta er langbesta sjoppa sem að ég hef komið í,
hún er æðislega góð,
sósa og salat...
góð mynd!
ertu ekki með net í íbúðina og skype? Maður þarf að fara að heyra í kappanum.. með skólakveðju maðurinn í fleirtölu
Mér fannst nú Blossi eða 810551 miklu betri, maður verður að "halda partýinu gangandi á þessari plánetu".
Með allt á hreinu er svosem ekkert spes miðað við hið fyrrnefnda meistarastykki
hjölli skildi ekki að þetta var lélegur fimmaurabrandari þannig að ég held hér með fram að þetta var lélegt grín, Með allt á hreinu er eðalræma sem er að hægt að horfa á aftur og aftur... verð samt að koma með eina línu úr Nýtt líf...
"áttu eld?"
Ha?"
Áttu eld?"
"ha?"
"Áttu eld?
"Ha, nei ég á bara bursta"
alla vega búið að taka frá pláss í gufuklúbbnum fyrir þig Friðrik minn .... bis spater.
Vá hvað ég man ekki eftir að hafa skrifað þetta fyrir ofan
kjánaprik!!
það besta við langferðabílsdjókinn er að hann kom spontant uppúr Valgeir. Þannig að hann varð að spurja hvort þeir höfðu fattað hann
Skildi nú alveg að þetta ver lélegt grín hjá þér Arnar. þar sem Blossi hefur verið valin 3 lélegasta íslenska kvikmynd allra tíma á eftir,allt á hreinu 2 og opinberun Hannesar...
Vildi leiðrétta það, fólk gæti haldið að ég væri heimskur og ég vil ekki hafa það á ferilskránni þegar ég sæki um starf í framtíðinni.
Allt í góðu Hjölli minn, það heldur enginn að þú sért heimskur. Addi er samt með það á ferilskránni að vera fullur kommentandi á bloggsíður. 10 stig þar.
Post a Comment