
Herra ÍslandÉG ORNA mér oft við rafmagnsofn á köldum síðkvöldum og horfi á það sem er í imbanum í það og það skipti. Í gær var mér þó stórlega misboðið þegar ég horfði á keppni sem kallast Herra Ísland. Þar kepptu nokkrir föngulegir ungir sveinar um að verða fegurðardrottningar. Maður spyr sig: Hvað er orðið af karlmennskunni í nútímaþjóðfélagi? Flestir þessir drengir virtust nota meira af snyrtivörum en meðalkvenmaður gerði þegar ég var ungur. Sá sem vann virtist vera með ýmsar tegundir andlitsmálningar og glotti við tönn á kvenlegan máta þegar sigurvegarinn var tilkynntur. Ef þetta er frambærilegasti fulltrúi íslenskrar þjóðar þá er mér stórlega misboðið. Til eru mun karlmannlegri herrar, það er sérkeppni fyrir kvenfólk sem heitir Ungfrú Ísland. Vil ég benda fólki á að kjósa kvenfólkið í kvenfólkskeppninni og reyna að hafa eitthvað ögn karlmannlegra í karlmannskeppninni. Dæmi um karlmannlega karlmenn sem hefðu á sínum tíma orðið verðugir fulltrúar íslenskrar þjóðar eru t.d. Jón Páll kraftajötunn, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður og Randver Þorláksson. Svo legg ég til að menn verði skyldaðir til að heita karlmannlegum nöfnum í þessari keppni, svo sem Styrkár eða Skarphéðinn. Maður óttast um karlmennsku þjóðarinnar þegar maður horfir á svona keppni. Það á að hamra járnið meðan það er heitt. Hvað er þetta? Maður spyr sig.
Guðmundur Þormarsson, fyrrverandi bóndi.
Ég segi eins og Hr. Guðmundur: What is this?
Ég er farinn eins og Minnesota í úrslitunum,
Friðrik
Friðrik
16 comments:
Sammála, það hefði verið betra að velja gaur með bumbu
Það hefði bara verið betra að velja ekki gaur sem lítur út eins og gamla konan í Coldplay myndbandinu.
Þetta er rosalegt sko, ég rakst á strák sem ég kannast við um daginn sem var í þessari keppni, hann var með einhverjum beautyguys þarna og ég sagði fyrsta sem ég sagði við, "Hvað er að sjá þig?" appelsínugulur með neon hvítartennur í jakkafötum á stjörnutorgi voða svalir að sýna sig. Allir í jakkafötum með loose tie, stífgelaðir og allur pakkinn. Þú veist þessi gaur er að vinna sem sendill eða eitthvað, af hverju er hann í jakkafötum að borða hollustusalat frá subway rétt fyrir lokun á laugardegi. Greinilega daginn eftir þessa sýningu, í "þynnkumunchi" í jakkafötum, skil ekki alveg...
"What is up with it chocolate face, no make-up?"
Það er heppni að lenda ekki á getulausum gaur...
heheh
Þetta er náttla bara spurning um alla þessa æðislegu stáka sem menn eru að kynnast í keppninni.
Mér heyrist að hjölli ætli að taka þátt næst....
Stjórnendur keppninnar ætluðu nú ekki að láta hjölla sleppa herna um árið. voru æstir í að fá kallinn og hringdu oft en hann lét ekki platast. hehe.
Ég held að þeir ættu að nota aðferð Frobeniusar næst!
Guð hvað ég er sammála ykkur strákar. Ég var einmitt að spá í þessu um daginn þegar ein var að spyrja mig hvort ég hefði horft á þetta. Skil ekki afhverju það er verið að halda þessar keppnir alltaf hreint?!! Þeir eru eins og gúmíkarlar :D
Þeir ættu bara að tala við Venna Páer, hann gæfi þeim lýsi og malt
Þessir Herra Ísland eru svo takmarkaðir og vanheilir að þeir eru fastir í sínum eigin skít
Mein Herr, das ist nicht gut!
Það var enginn með alvöru skegg á efri vörinni þarna og hvað varð um hreina aría, þeir eru hinn eini sanni!!!
Það eru allir ógeðslega appelsínugulir labbandi um sviðið eins og mongólítar.
Með kveðju frá eyjunni frábæru,
Reynir Axel
PS ég er bestur
Ég set nú markið aðeins hærra en þetta Pálmar minn og stefni á að komast á topp 6 listann yfir sætustu strákana á myspace...
þú þarft þá að vera með síðu á myspace til þess hjölli minn...
What up vanilla face. Hvernig fannst þér Borat?
You be my wife!
Post a Comment