Friday, October 12, 2007

Herr Professor Doktor

Ógiftur maður í kjallaranum

Föstudagskvöld, bara rólegheit. Kom heim um kvöldmatarleytið með tvær spólur, Black Sheep og Elizabeth. Ákvað að horfa á Black Sheep til að fá smá Chris Farley geðveiki og kókaín grunge húmor í mig og síðan ætla ég að rýna í Elizabeth til að vera tilbúinn að sjá Elizabeth: The Golden Age í bíó. Það er svo gaman að fara í bíó.

Algjörir young cats

Ég var ekki kominn heim fyrr en í kringum 7 leytið í dag eins og alla föstudaga. Þrisvar sinnum í viku þrjá tíma í senn er ég með verklega tíma í Analog Electronics. Fyrst þegar ég var að byrja með tímana hélt ég að ég myndi deyja, þetta var að klúðrast. Fyrsta verkefnið var einhver bjánaleg feedback rás sem nemendurnir áttu að herma í tölvuforriti. Tölvuforritið reyndist meingallað og illa uppsett á skólatölvurnar sem skapaði mikinn höfuðverk fyrir mig þar sem prófessorinn í faginu kunni ekki mikið á það sjálfur.
Eftir fyrsta daginn var það "smooth sailing on calm seas". Hinar verklegu æfingarnar eru flottar rásir sem ég þekki mjög vel og eiga krakkarnir að lóða allar rásir. Ég set saman allar rásir fyrirfram og ég verð að segja að ég er orðinn mun betri að lóða en þegar ég setti saman alræmdan aflgjafa(betur þekktur sem "Rebel without a Cause") á þriðju önn í Háskóla Íslands.
Þegar ég var að byrja að kenna þessar æfingarnar fannst mér það fáranlega gaman. Allir mættu mjög vel, skiluðu á réttum tíma og voru með allt á hreinu.

Ég ætla aldrei að verða kennari.

Þegar ég var á seinni árum í Verzló og síðan í HÍ fékk ég það orðspor á mig að vera grófur við kennara og sagður stundum rífa kjaft. Við skulum skoða þetta aðeins nánar. Á seinustu tvem árunum í Verzló reif ég kjaft við einn kennara. Fúsa. Ég reif aldrei kjaft við Þórð Möller, Guðrúnu, Benna, Ármann eða jafnvel vanhæfu þýskukennarana. Afhverju reif ég svona mikinn kjaft við Fúsa. Ég stend fyrir þeirri sterku og góðu skoðun að þú færð ekki virðingu nema þú sýnir virðingu. Fúsi er einn af þeim kennurum sem finnst að allir nemendur hans eiga að finnast hann æðislegur, engu máli skipti hvernig hann standi sig. Honum varð fljótt illa við mig og ég við hann því ég kvartaði undan námsefninu og að hann kenndi bara nokkrum einstaklingunm í bekknum, þ.e. stelpum sem sögðu halelúja og amen. Það er kannski í lagi en hann kom fram við restina af bekknum eins og drasl og þessvegna varð þetta að rugli. Fúsi var 100% fáviti sem heldur hann sé algjör stjörnumáltíð út af því að hann kláraði master í eðlisfræði 33 ára gamall og klæðir sig í stærðfræði/MIT/Stjörnufræði boli. Hverjum er ekki sama. Hann var pizzasendill í þröngum buksum sem sýndi alltaf hvoru megin hann var.

Í HÍ reif ég kjaft við engann kennara. Nema Jón Hálfdánarson. Jón Hálfdánarson var algjörlega út af kortinu. Eðlisfræði kennari, alveg eins og Fúsi, vissi ekkert hvernig hann átti að snúa á sviðinu og gat engan vegin komið efninu frá sér. Ég kvartaði mikið undan Mastering Physics kennsluefninu sem var notað. Heimadæmin voru leyst á netinu og átti að vera voða móðins. Þetta varð til þess að öll eðlisávísun sem maður byggir upp með dæmareikningi og viðbrögðum kennara við honum fór út í bláinn. Tölva fór sjálfvirkt yfir dæmin og varð því ekkert samband. Þetta fannst Jóni æðislegt og reifst ég mikið við hann og gekk út úr tíma í ófá skipti. Hann réttlætti þetta með því að Kanarnir(e. Yanks) væru að nota sömu bók í stærstu skólunum. Síðan fór ég í skiptinám til UCSB, flottur skóli á eðlisfræði mælikvarða, og þar notuðu þeir Mastering Physics. Þar voru allir hundóánægðir með bókina og kennsluefnið og voru að vinna í því að skipta henni út. Feis Jón. Feis.

Hrafn man kannski líka eftir því þegar við fórum í vettfangsferð upp á Veðurstofu. Jón fór með okkur en vantaði far þar sem hann hjólaði alltaf í skólann. Auðvitað bauð ég honum far. Ég og Hrafn tókum hann á beinið á leiðinni upp á stofu og stóð hann alveg á gati. Ef að kennari stendur ekki á sínu og sýnir nemendum fram á það að það eigi að vinna hlutina eins og þeir leggi til, þá eiga þeir að hætta að kenna.

En afhverju er ég að nefna þetta. Eru allir krakkarnir að rífa kjaft við mig? Nei, heldur betur ekki. Þetta eru flottir krakkar. En síðan eru strákarnir, sem mæta í alla tíma, hlusta á sama hlutinn aftur og aftur og taka ekkert inn. Spyrja sömu spurninganna þrisvar og hlusta ekki á svarið. Skila inn ljótum heimadæmum og botna ekkert í lélegri einkunn. Svo eru stelpurnar, sem skrifa 20 blaðsíðna skýrslum sem gátu verið 3 blaðsíður, spyrja og spyrja spurninga um hluti sem þær vita bara til að vera "vissar". Svo eru strákarnir sem halda að þeir vita allt áður en þeir mæta í tíma og gera allt rosalega snöggt og rosalega hratt og fá rosalega rangar niðurstöður og gleyma að svara flestum spurningunum í skýrslunni. Svo stelpurnar sem eru alltaf með símana uppi og tala alltaf með spurningatón þótt þær séu ekki að spyrja. Svo er allt þar á milli.

Ef ég myndi leggja þetta fyrir mig þá myndi ég enda eins og Jón og Fúsi. Leiðinlegur kall sem er orðinn þreyttur á að kenna með krakka upp á móti mér. Það er ástæðan fyrir því að mig langar ekki að vera kennari.

Í augnablikinu finnst mér þetta ennþá gaman. Flestir krakkarnir eru mjög skemmtilegir og ferskir, æfingarnar fínar og peningurinn meira en vel þeginn. Enda væri ég ekki að þessu nema að mér væri borgað góð laun.

Í næstu viku fer ég í eitt miðannarpróf í digital signal processing og svo er eitt próf í tölfræði í vikunni þar á eftir. Undanfarið er búið að rigna þokkalega hérna í Boston og farið að kólna töluvert. Ég verð að segja að ég er mjög ánægður með það.

Núna ætla ég að bjóða upp á frábært lag, Woman of the Ghetto, með Marlene Shaw. 9th Wonder notaði þetta lag í Slippin' á Chemistry plötunni með Buckshot. Þið heyrið kannski kunnulegan hlut í enda lagsins þar sem Shaw fer út í geng-geng trans. Það er rétt, Marlena er söngkonan sem var notuð í alræmda geng-geng lagið sem tröllreið öllu á Íslandi á öndveðri 20. öld. Það var lagið Liberation Conversation af sömu plötu, Spice of Life. Ég ætlaði fyrst bara að setja inn Woman of the Ghetto en núna stenst ég ekki mátið að setja besta lagið af plötunni líka. Það er California Soul, sem DJ Premier notaði í Gangstarr lagið Check the Technique.

Í bili skulum við halda okkur í svörtum sálar elskum og hlusta á Martha Reeves & The Vandellas. Allir þekkja þessar elskur fyrir að hafa sungið Heat Wave svo óaðfinnanlega. Hérna eru þær mættar með snyrtilega ábreiðu. Bítlalagið Something. Fiðludramað nær ekki jafn miklu hámarki í þessari útgáfu en sálin er mun meiri.

Svo er rappið. Ég elska þetta rapp. Ég var að uppgötva frábæra plötu. World Premiere með The Team. Þetta er plata sem kom út 2006 og ég er búinn að hlusta á hana mjög mikið undanfarið. Þetta eru þrír ungir menn frá Oakland og þeir eru ekki með neina bófastæla. Þeir rappa aðallega um þrjá hluti svo ég vitni í vinsæla bloggsíðu: "There’s no crime-talk going on here and the lyrics pretty much focus on getting high, getting laid and getting around The Bay area". Bestu lögin á plötunni eru umdeilanlega Top of the World og Touch The Sky. Ég vil að Kiddi Myndarlegi og Hildur Sigrún hlusti sérstaklega á Top of the World. Þetta er þetta hljóðgervla brjálæði sem við elskum. That hot shit.

Meira rapp. Smá afturhvarf. Á leiðinni frá New York las ég heila bók. Hún er hluti af 33 1/3 seríunni þar sem merkilegar plötur eru teknar fyrir og krufnar til mergjar, lögin skoðuð og heimsástand þegar platan var samin íhugað. Einnig er fjallað ítarlega um ástand hljómsveitarinnar þegar viðkomandi plata er samin. Bókin sem ég las í þetta skiptið var um Paul's Boutique með Beastie Boys. Algjör gull bók með miklum upplýsingum. Sagan á bak við lagið Egg Man er eins og kúlusúkk hún er svo góð. Algjör pulsa með tómat og steiktum. Hlustið á tekstann.
Núna er ég svo að lesa aðra bók í seríunni. Hún er um Live at the Apollo með James Brown.

Auðvitða ætla ég svo að enda færsluna á Stevie Wonder. Undrið er ótrúlegt. Núna er það ábreiða. Bang Bang sem Sonny Bono samdi fyrir Nancy Sinatra. Lagið er einnig af Down To Earth sem ég minntist á í seinustu færslu. Mér finnst þessi útsetning mun flottari heldur en Sinatra lagið.

Gáta færslunnar. Þessi gáta er í tvem hlutum og þið megið ekki svara nema þið skjótið á báða hlutana:

1. Úr hvaða lagi er bassalínan sem er notuð í Egg Man.
2. Hvaða karlmanns rappari rappar í þessu lagi, Intro.

Auðvitað má biðja um vísbendingar. Bannað að "gúgla" teksta brot.

kv,
Friðrik

16 comments:

Unknown said...

1. SuperFly - Curtis
Introið virkar ekki...
pííís

Anonymous said...

1. gefins
2. ég er 95% viss um að þetta sé Coolio.

ble

Anonymous said...

ps. flottir youngcats

Anonymous said...

Introið virkar núna og þetta er ekki Coolio

Anonymous said...

Sammála Adda að 1. sé Superfly með curtis Mayfield. Ég kíska á að 2. sé Rah Digga úr Flipmode Squad.

Anonymous said...

Það er rétt að Rah Digga er í Intro laginu, en hún er kvenkyns

Anonymous said...

...er maðurinn sem les aldrei alla spurninguna...... :|

Unknown said...

2. Keith Murray ?

Anonymous said...

Ekki Keith Murray. Rapparinn í laginu er partur af Wu-Tang

Anonymous said...

Inspectah Deck

Anonymous said...

ghostface killllla

Anonymous said...

bingó á Ghostface Killa

Anonymous said...

auðvita er þetta the WU.

Unknown said...

again and again and again

Daníel Ólafsson aka Danni Deluxe aka Illaður Dan aka Nigga Beinteins said...

FRIKKI GULLMOLI!

Hvað er að frétta maður?

Ég var búinn að gleyma þessu bloggi, en minn maður M.LEIFS benti mér á að það væri á full swing...

Kastaðu dubs í leikmanninn...

Anonymous said...

hæhæ frændi varð að kasta inn kveðju fyrst að ég kíkti hér inn, þú ert algjör snillingur drengur það er með eindæmum, Keep it up