Wednesday, February 22, 2006

You wouldn´t believe what happened to Stevie

Þá er allt Boston Bob mættur til Killa Cali og sólin skín. Jóhann mætti um hádegis bilið í dag og var alls ekki ósáttur við góða verðið hérna í Santa barbara. Tókum létta skoðanaferð um campusinn og fór meirihlutinn af deginum í það að sýna honum svæðið.
Stefnan er svo að leggja af stað til borg englanna snemma á föstudags morgun. Gistum við þar á hóteli í strandarhverfunum og allir helstu jazz staðirinir verða skópaðir. Það verður án efa fett produkt.
Nú er maður svo kominn með myndavél í hendurnar, er nú þegar búinn að taka þó nokkrar myndir og bomba þeim á netið fyrr en síðar.

Í vikunni kom það í ljós að mig vantaði eina einingu upp á það að geta skilað frá mér heilli önn. Þá ákvað ég að bæta við mig kúrsinum "Creating Memorable Characters in Fiction". Ég fór í fyrsta tímann í þeim kúrsi í dag og var það vægast sagt upplifun.
Þetta eru fámennir tímar og kennarinn er einhver burnout rithöfundur sem er svo bitur út í lífið að það er grátlegt. Lítill sköllóttur einsog klipptur út úr Seinfeld og ofan á það er hann svo þveröfugur að ef hann væri með hár væri hann örugglega On-stage Diva að leika í Bollywood myndum. Samnemendur mínir er svo jafnskrautlegir. Kúreka mamman með ekki-gráa-heldur-hvítahárið tryllir staðinn á pickup bílnum. Hippakonan sem er æst í það að snúa öllum samræðum upp í pælingar um Led Zeppelin eða Van Halen teksta. Massadrengurinn sem lætur alla sína karaktera(sem við erum að búa til í tímunum) vera ofurhermenn sem berjast í Bagdad. Og svo er það Drottningin í tímum. Kona á þrítugsaldri, gengur um í kúrekastígvélum og mötorhead bol og talar eins og hún sé klippt út úr Quentin Tarantino mynd. Frekar tryllt.

Allavega, ég skrifa meira þegar við komum til baka frá Los Angeles og reyni að koma þessum myndum inn.


later,
Friðrik

p.s. Bjarni mun fá sérstaka heiðursmynd af Nolda stjörnunni í Hollywood

3 comments:

Anonymous said...

Commentið elskurnar mínar

Anonymous said...

Mér líst vel á að kallinn sé farinn að blogga. Þú verður að henda inn myndasíðu til þess að setja punktinn yfir i-ið.

Anonymous said...

I want some love brown sugahh....

flott tan sem kadlinn er kominn með ;)