Monday, May 29, 2006

Backyard Betty

Fólkið sem sat eins
Miðannarpóf búin, þriggja daga helgi, þrjár vikur í heimferð. 20 stiga hiti, sund í kyrra hafinu, feit sósusamloka með beikoni og krabbameini. Lífið er gott.

Love is a thing of the past
Klukkan var svona tæplega tvö um nóttu, ég nýbúinn að horfa á The Aviator og að gera mig tilbúinn fyrir svefn. Þegar það var svona hálftími eftir af myndinni byrjaði ég að taka eftir einhverjum skringilegum hljóðum, svona lágstemmdum dýra öskrum. Ég var ekkert mikið að pæla í þeim enda inni í myndinni. Myndin klárast og hljóðin stigmagnast. Ég ákvað að skella mér út og tjekka á þessu. Um leið og ég opna hurðina sé ég hvað er í gangi.
Íbúðabyggingarnar eru þannig byggðar að það eru tvær tveggja hæða byggingar sem liggja samsíða með garði á milli. Mín íbúð snýr að garðinum og er á efri hæð. Klukkan tvö um nóttu akkurat í smellimiðjunni á garðinum eru tveir þvottabirnir að halda partý. Karldýrið, með hvítan feld, er greinilega gjörsamlega spólandi og kvendýrið, með brúnan feld, ekkert að hata það. Hann búinn að vera reyna búa til þvottabjarnarbörn í rúman hálftíma og á nóg eftir í bankanum. Enginn einnar mínútu maður. Þessum ástarlotum fylgja tilheyrandi öskur, tístur og bit á slagæð.
Núna eru flestir íbúarnir, sem eru í íbúðum sem snúa að garðinum vaknaðir og byrjaðir að hvetja Lilleman áfram. Sumir taka myndir en aðrir bara hvetja. Ég ákvað að taka ekkert mynd, virði einkalíf Lillemans.
En núna klukkutíma seinna er kallinn ekkert að hætta. Hann er búinn að vera þreytulaust að og kvendýrið er búið að velta sér nokkrum sinnum um og reyna bíta hann á hálsinn en nei þýðir greinilega ekkert nei hjá þvottabjörnum. Núna er þriðji þvottabjörninn mættur á svæðið og hann er bara alls ekkert sáttur. Sá björn er búinn að reyna núna í korter að komast að og taka við af Lilleman en hann er ekkert að ná því. Lilleman er greinilega ekkert að gefast upp. Þessu fylgja tilheyrandi skrækir og klór. Núna eru íbúarnir byrjaðir að kasta mat í þá til að hrekja þá í burtu. En eins og ég hélt þá ákvað þriðji björninn að borða bara matinn og horfa á í staðinn fyrir að fara í burtu. Það er greinilega bara Sex, Lies and Videotapes hjá þvottabjörnum.

Blindur Fáviti
Seinasta fimmtudag var ég að rölta úr tíma í hádeginu, á leið á Subway að kaupa mér samloku og stefnan tekin á feitt sólbað fyrir næsta tíma. Ég rölti um campusinn og stoppa ásamt hópi og bíð eftir því að komast yfir hjólastíg. Á háannatíma, eins og í hádeginu, getur verið ansi skrýtið að komast yfir stígana þar sem það er stöðug umferð af "iPod drones" á hjólum brunandi í báðar áttir.
Þar sem ég stend og bíð er tekið í öxlina á mér. Ég lýt við og sé gaur. Feitur gaur í ljótri köflóttri skyrtu starandi tómlega út í loftið. Hann spyr hvort ég geti ekki hjálpað honum yfir götuna. Þá tek ég eftir því að hann er með hvítan staf og segi náttúrulega bara ekkert mál. Ég hef séð þennan gaur nokkrum sinnum í vetur, þekkir greinilega campusinn út í gegn og kemst aðallega alveg einn leiðar sinnar, alltaf með hvíta stafinn. Við stöndum í svona eina mínútu, umferðin alveg jafn þétt og stórhættuleg ennþá. Þá segir feiti alltí einu: "I´m going in" og tekur tvö skref í áttina að hjólastígnum. Ég náttúrulega bara fæ sjokk ríf í gaurinn og hálfpartinn tek hann í jörðina. Fólk horfir á mig og er að pæla í því afhverju gaurinn sé að lemja blinda manninn. Þá fer feiti að hlægja og segir "No I´m just messing with you", stendur svo upp og labbar í átt frá hjólastígnum. Ég held núna að hann sé ekkert blindur, labbi bara um skólasvæðið og plati fólk. Þreifi á stelpum til að "þekkja" þær. Svo fær hann örugglega ókeypis kakó bastarðurinn.

P.s.
Avery Johnson á klárlega tilþrif NBA úrslita keppninnar. Tjekkið á þessu og hlægið í þrjá daga eins og ég.

seinna,
Friðrik

7 comments:

Anonymous said...

Avery Johnson er náttúrulega að taka besta múvið í þessu myndbandi. Ég grét úr hlátri þegar ég sá þetta og er ennþá að þurrka.

Anonymous said...

hm,hm ég held að það sé ekki hægt að opna aftur, ekkert nafn komið..............

Anonymous said...

Johnny´s Boom Boom Room.

Anonymous said...

Lúbarinn?

Anonymous said...

Vengaboys getur verið húsbandið.
Boom boom boom, I want you in my room.

Anonymous said...

hahaha Vengaboys er hljómsveit hljómsveitanna, "I´m going to Ibiza, gonna have a party" líst vel á nöfnin, ætla að leggja hausinn í bleyti og finna eiitthvað nafn í nafnasamkeppnina.... over and out farinn í þynnkubanann.
PS. það má segja að sumarrallið hafi hafist í gær, tók meira að segja Daníel litla bróðir á Vegó og hverfisbarinn, þar sem ég fékk að hitta amk. 4 fyrrverandi kærustur hans! Hver man ekki eftir að hann kom með okkur á de Palace og komst inn á skilríkjunum hans Frikka, en frikki fékk ekki að koma inn haha.... bis spater

Anonymous said...

heirru hvaða dag kemuru heim?? verð nebbla á íslandi 15.-18. :)