Friday, May 19, 2006

MC Strætóskýli

Þar sem ég sat í rólegheitum heima í íbúðinni hjá mér á mánuag fékk ég allt í í einum símtal. Í símanum var Addi. Addi var nýbúinn í prófum og var að fá sér bjór. Hann var þegar búinn að fá sér nokkra og talaði stanslaust um það hvað við ættum að gera sniðugt í sumar. Þegar umræðan var farin frá hálandaferðum og byrjuð að snúast um grillveislur, þá byrjaði einhver ungur drengur fyrir aftan hann að öskra "Throw your hands up". Það var víst Bjarni Þór, einnig búinn í prófum. Áður en ég vissi af var óskýr taktur kominn í gang og Bjarni hélt áfram að öskra á meðan Addi rappaði um þá ímynd sem hann hefur af sumrinu 2006:

12 AM on the way to the club (uh)
1 AM DJ made it erupt
(uh-huh)
2 AM now I´m getting with her
(what up?)
3 AM now I'm splittin with her (splittin with who?)

4 AM at the waffle house (waffle house)
5 AM now we at my house (uh)
6 AM I be diggin her out (who?)
6:15 I be kickin her out (uh-huh)
7 AM I´ma call my friends (uh-huh)
12 AM we gon´ do it again
We gon´, we gon´, we gon´ do it again

Í tilefni þess að MC Strætóskýli rappaði eins og rappari rappandi rappteksta ákvað ég að búa til kort. Á kortinu er númer sem öll eiga við þá staði sem eiga vel við gott sumar í Reykjavík:
  1. Langholtsvegur 153 - Miðað við undanfarin sumur verður töluverðum tíma eitt hér. Klámkjallarinn verður á sínum stað, einnig verður eflaust grillað. Mælt er með því að búast við því að gista. Innan handar er svo hin fínasta Gambino sjoppa þar sem hægt er að kaupa stolna mjólk og pulsubrauð.
  2. Viðarás 69 - Heyrst hefur að Hrafn hafi breytt um nafn. Hann hefur tekið upp nafnið HumarHrafn (eða bara double H). Hefur hann smyglað nokkrum humrum frá Eyjum og byrjað humareldi í heitapottinum. Í tilefni þess er hann skyldaður til að halda minnsta kosti tvær humarveislur fyrir vetrarsólstöður. Hjörleifur og Arnar hafa þegar gerst sjálfboðaliðar til að kanna humargæði í hverri viku meðan Hrafn er í Eyjum að spila golf.
  3. Barónsstígur 80 - Hér er oft hægt að finna afvegaleiddar fimleikastelpur í partýleit. Oft er gott að koma hingað til að heyra klassíska slagara eins og "Einn dans við mig" og "Út á stoppistöð". Hér er einnig hægt að finna "the most legendary crash couch".
  4. Hlíðarendi - Hér verður hægt að fara og sjá HumarHrafn verja skot frá Valsmönnum. Búist við skoppandi krullum og humarsúpu á tilboði. Einnig er gott að fara hingað og rækta andann því tíma er vel varið á Hlíðarenda. By the way, besta hús í heimi.
  5. Golfvellir - Hér er oft hægt að panta fund með týndum foreldrum, ef þau eru ekki að pútta. Bannað er að mæta í gallabuksum og mælt er með þvi að koma með samlokur svo týndir foreldrar þurfi ekki að fara af golfvellinum til að borða.
  6. Goðaland 9 - Hingað koma menn ef þeir vilja tapa í NBA street 2. Einnig verður boðið upp á ýmiskonar pottapartý. Potturinn á staðnum er með fjarstýrðum nuddblásurum og innbyggðu diskóteki og tennisvelli. Komið með Lego og Led Zeppelin boli til að styggja ekki íbúana.
  7. Grafarholt - Heyrst hefur að Bestla og Bentsson (eða bara B-power) hafi flutt hingað. Jón Árni og Pálmar hafa þegar byrjað á því að ganga í hús og kenna fólki "putta dansinn" til að undirbúa partý sem verður haldið í kringum lok HM.
  8. Íslenska Hálendið - Ásamt því að fara með Golfhanskanum og félögum á Torfajökulsvæðið þá er þegar verið að plana ferð í Ódáðahraun eða á einhvern annan góða stað ásamt Arnari og fleirri góðum mönnum. Heyrst hefur að Hildur "Listó" Valsdóttir hafi keypt sumarbústað á láglendinu og ætli að halda heimkomu partý.
  9. Miðbærinn - Gæti reynst óþarfur fyrst að Bestla er komin með íbúð. Íbúðin hefur fengið viðurnefnið Klámblokkin og verður útibú af Klámkjallaranum.
  10. Safamýri 47 - Hingað er gott að koma ef menn vantar nýjustu DVD myndir. Húsráðandi sér um bestu vídeó kvöld í bænum og komast færri að en vilja. Einnig er hægt að fara í 2 player í Probotector. Árlega er horft á Band of Brothers.
  11. Nauthólsvík - Hingað kemur enginn nema hann sé þrítugur faðir.
  12. Laugardagslaug - Betur þekkt sem "Hvíta Rússland". Hér er hægt að sóla sig og synda. Mörg not er hægt að hafa af lauginni. Ráðgjafar verða á svæðinu í allt sumar. Ef þið viljið hámarka "De-Tox" meðferð, talið þá við Bjarna þór. Ef þið viljið læra tæknina að fara fimm sinnum í sund á sama degi talið þá við Adrian.
  13. Vífilsgata 1 - Heyrst hefur að húsráðandi ætli að halda "Swinger" partý fyrir gesti og gangandi aðra hvora helgi í sumar. Fatnaður er óæskilegur og mælt er með því að koma með konu. Ef gestir sjá sig neydda til að vera í fötum er leggur húsráðandi til afklipptar gallabuksur og seríós boli.
  14. Nonnabitar og Bæjarins Bestu - Allir þurfa að borða og svo ég vitni nú í Óla Danska þá er þetta "The Shit".
Heimildir: Jóhanna Bárðadóttir

later:.
Friðrik

15 comments:

Anonymous said...

ég hélt ég myndi deyja, lego og led zeppelin boli til að styggja ekki íbúana...........
Þú ert nú meiri gaurinn...

Anonymous said...

haha þetta er eitthvað mesta gull sem ég hef lesið.....

Anonymous said...

Klámkjallaranum hefur verið lokað, vegna dræmrar aðsóknar í vetur sem rekja má m.a. til þess að nafnið þykir ljótt og leiðinlegt. Opnað verður undir nýju nafni um mitt sumar.

Anonymous said...

Orðið á götunni er að nafninu verði breytt í Champagne Club.

Anonymous said...

krúttið mitt! ´Þér er velkomið að mæta í golfið með týndum foreldrum, þú gætir leikið týnda soninn. Kakíbuxur leyfðar, þurfa samt að ná uppfyrir rass. Ljótt að sjá pípararassinn þegar náð er í kúlu úr holu. Innifalið: samlokur og kókómjólk og einstaka draumur...............

Anonymous said...

Pálmar okkar maður kemur með flott nafn, þvílíkur klassi. En því miður höldum við að það hafi aldrei gerst að tóm kampavínsflaska hafi fari í endurvinnsluna í Sorpu úppúr þessum kjallara. Okkur datt kannski í hug Ölkjallarinn (hm, af hverju), Á snúrunni, (snúrurnar skammt undan) eða Betri stofan, því að stundum er hún betri en engin. Við stofnum til keppni um besta nafnið. Fyrstu verðlaun eru : miði fyrir tvo þegar kjallarinn verður opnaður aftur um mitt sumar.

Anonymous said...

Einnig kæmi það kannski ekki á óvart ef að búið væri að breyta kjallaranum í 9 holu minigolfvöll og setja einnig upp golfhermi þar.

Anonymous said...

now you are taking...........

Anonymous said...

Hahahaha, vá Frikki! Það besta við þessa síðu eru kommentin frá foreldrum þínum :D

Anonymous said...

Illa góð færsla. Verð klárlega að finna góðan tíma fyrir humarpartý í Viðarásnum. Ég held nú að það sé ekkert gott nafn sem geti leyst klámkjallarann af hólmi. Mér þykir fyrir því Jóhanna. Annars var betri stofan ágætis tilraun.

Anonymous said...

snilldar færsla og comment!! GVendargeisLinn mun sanna sig í sumar og standa fyrir sínu - en á seint eftir að leysa ,,kLámkjaLLARann,, aka ,,betri stofuna,, af!! Held að hópurinn sé spenntur að fá johnny-hammond heim til að hefja samskipti á nýjan leik:)

Anonymous said...

Hæ frændi,

Panta hér með grillboð í klámkjallarann, hahaha

Hafðu það gott sæti!

Anonymous said...

Spurning um að fá Sola Moon (hvernig sem það er nú skrifað) til þess að koma í kjallarann og taka lagið.

Anonymous said...

Spurning um að fá Sola Moon (hvernig sem það er nú skrifað) til þess að koma í kjallarann og taka lagið.

Anonymous said...

Fokk, Zola moon, eg var buinn ad gleyma henni, 'oslipadi gimsteinninn 'a Redondo Beach